fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Nei, fjármálaáætlun segir bara annað. Það er ekki verið að verja sömu fjármunum í fjárfestingu í þessari mikilvægu atvinnugrein og verið hefur á síðustu árum og bara svo því sé til haga haldið þá er sú sem hér talar ekki að tala fyrir auknum ríkisútgjöldum. 3,5% markmiðið er auðvitað bara markmið nýsköpunar og þróunar í samfélaginu í heild sinni en það þarf ákveðna aðstoð til að ýta undir það að einkafyrirtækin fjárfesti í nýsköpun.
Virðulegur forseti. Það var nú síðast í dag sem ég rakst á frétt á Vísi sem segir, með leyfi forseta: „Umsóknum synjað og kurr í greininni.“ Þá segir í þessari frétt:
„Það færist í vöxt að nýsköpunarfyrirtækjum sé synjað um endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar að sögn sviðsstjóra hjá Samtökum iðnaðarins. Kallað er eftir því að stjórnvöld dragi úr óvissu og samtökin benda á að tækni- og hugverkafyrirtæki hafi á síðasta ári skilað þjóðarbúinu meiri útflutningstekjum en sjávarútvegurinn.“
Virðulegur forseti. Ég hef komið inn á þetta áður í ræðustól. Hér er maður að heyra dæmi af því að fyrirtæki sem hafa fengið stuðning frá Tækniþróunarsjóði — og til þess að fá slíkan stuðning þarf að vera um nýsköpun að ræða — eru núna að fá synjun um endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar. Er nema von að það sé kurr í greininni? Er nema von að fyrirtæki í þessum geira hafi verulegar áhyggjur af því hvert framhaldið verður ef þau fá ekki afgreiðslu hjá Rannís? Ef hæstv. ráðherra er með lausn á því þá bið ég hann vinsamlegast að upplýsa þingheim en ekki síst þessi fyrirtæki sem starfa í þessum geira. Ég efast ekki um að hæstv. ráðherra hafi heyrt þennan kurr og þessa óánægju. Ég er búinn að spyrja bæði hæstv. ráðherra og líka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra út í þetta og báðir ráðherrarnir hafi neitað því að þetta hafi eitthvað með ríkisstjórnina að gera eða ákvarðanir þar. Engu að síður stendur samt hér svart á hvítu að fjárframlögin eru að dragast saman.