fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að mikið af því sem við erum að gera ber kannski ekki endilega sýnilegan árangur á efnahag þjóðarinnar fyrr en eftir mörg ár. Sumt er beinlínis ekkert auðvelt að mæla í efnahagslegum áhrifum. Menning og listir eru t.d. hlutir sem skila þjóðinni alveg ótrúlega miklu án þess að það sé alltaf hægt að mæla í hárri framleiðni. Nægir bara að nefna að ef maður svona snöggt hugsar aftur til 14., 15., 16., 17., 18. og 19. aldar væru fyrstu fjögur, fimm nöfnin sem manni dytti í hug yfirleitt fræðafólk eða listafólk. Það skiptir líka máli þegar við erum að vinna með mjög takmarkað fjármagn, hvort heldur er til menningar, háskóla eða annarra hluta, að hafa mælaborð til þess líka að geta betur áttað sig á því hvernig á að ráðstafa fjármunum, bæði auðvitað til þess að þeir með tíð og tíma geti skilað efnahagslegum árangri en líka til þess að jafnræðis sé gætt. Mér hefur sýnst t.d. þegar ég horfi yfir málefnasvið menningar og lista og fjárveitingar til þeirra á síðustu árum þá sé það mjög handahófskennt og ekki farið eftir einhverjum hlutlægum mælikvörðum eða beinlínis verið að stefna að því að jafna skilyrði og stöðu fólks til að stunda eða njóta lista heldur meira að þeir fá sem hafa verið duglegastir að koma í ráðuneytið. Þess vegna skipta þessir mælikvarðar í því samhengi, alveg gríðarlega miklu máli. Í háskólunum erum við að horfa til þess líka að efla þær greinar sem geta stutt undir atvinnustefnu Íslands og þar þurfum við líka að hafa mælikvarða til að geta fylgst með því hvernig okkur er að ganga með það.