fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. nýsköpunar-, menningar- og háskólaráðherra fyrir umfjöllunina um málefnasviðið. Það er sannarlega af mörgu að taka og margt sem mig langar að ná að ræða hér í kvöld. Kannski við byrjum á því sem er hendi næst sem er umfjöllun um fjölmiðlana sem hefur verið gegnumgangandi stef hér á þinginu, enda eru umsvif ríkisvaldsins á fjölmiðlamarkaði veruleg, upp á 8 milljarða, og fer, eins og ég les það í fjármálaáætluninni, bara vaxandi í samræmi við verðbólgu og annað en það er auðvitað líka pólitísk ákvörðun að halda fjármunum svona háum þangað inn. Í sjálfu sér fer ég ekki að ræða þann þátt hversu miklir peningar fara í þetta heldur kannski einkum ef við horfum til þess hvernig þessu er dreift. Ég vildi spyrja hæstv. ráðherra í fyrsta lagi hvort hann hefði orðið var við umræðu um þá ákvörðun að láta auglýsingadeild Ríkisútvarpsins afla fjár til einkamiðlanna, hvernig það hefur lagst í einkamiðlana sem hafa haft margvíslegar hugmyndir um þetta og eru nú margir hverjir að deyja drottni sínum á meðan ríkisvaldið og fjölmiðlastarfsemi þess er eins og púkinn á fjósbitanum forðum og vex og er í öruggum skorðum án þess þó að ríkisvaldið, stjórnendur og ríkisstjórn séu tilbúin til að leyfa almenningi að ráðstafa því útvarpsgjaldi sem hann er látinn greiða til þess miðils sem þau myndu kjósa. Sömuleiðis vildi ég spyrja hæstv. ráðherra út í það í þessari umræðu, þegar við erum æ ofan í æ að tala um að ríkisstjórnin treysti þjóðinni fyrir hinu og þessu — hún treystir þjóðinni þó ekki fyrir því að ráðstafa útvarpsgjaldinu sjálfri — hvort hæstv. ráðherra hafi jafnvel snúist hugur um þetta atriði gagnvart ráðstöfun útvarpsgjaldsins og að gera það að hluta til frjálst, í allri þessari umræðu um þessa fallegu hugmynd að leyfa þjóðinni að ráða.