157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:05]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Já, þetta eru bara alveg ágætisvangaveltur hjá hv. þingmanni og þetta er í rauninni það sem við stefnum að. Þetta er einn liðurinn í því að ná gervigreindarfullveldi, að við eignumst okkar risamállíkan sem skilur, talar og getur unnið á góðri íslensku og til þess þurfum við auðvitað alla aðila samfélagsins til að koma að. Við þurfum háskólana, við þurfum atvinnulífið. Við erum með Árnastofnun sem leikur alveg gríðarlega stórt hlutverk fyrir okkur. Við erum líka með fyrirtæki sem eru að vinna að máltæknilausnum. Forsendan fyrir því að okkar vísindafólk geti starfað hér og náð framúrskarandi árangri með notkun gervigreindar er einmitt að við getum í rauninni fjárfest í reikniinnviðum og vélbúnaði, að við getum tryggt gagnaöryggi og að við eigum gögnin hér heima og höfum þau hér og getum tryggt okkar menningarlegu sérstöðu og svo að þetta fyrirbæri geti talað og hugsað — eða hugsað, talað eða svarað okkur alla vega á íslensku. Þannig að ég er alveg sammála. Svo er stafvæðingin annað mál sem við erum að vinna að í söfnunum okkar og Sarpur er nýendurnýjaður og ótrúlegt tæki sem gaman er að skoða.

Varðandi svo rithöfundana okkar þá jú, inn í þetta líkan ratar það sem er fallið úr höfundarétti. Um annað þurfum við bara eðlilega að semja við höfundana, ekki nota það í leyfisleysi.