157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:31]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Aftur þakka ég fyrir góðar fyrirspurnir. Mig langar að segja með neytendamálin að við erum að leggja mjög mikla áherslu á neytendamál almennt, neytendavernd og tengt því sanngirnismál í ráðuneytinu í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Ég vonast til að við náum að klára hér fyrir haustið ný markaðssetningarlög sem eru fyrir þinginu. Þar er að finna ákveðna uppfærslu og endurskoðun á gildandi löggjöf á sviði neytendamála þar sem aukin neytendavernd er í fyrirrúmi. Síðan erum við að efla Neytendastofu, við erum að auka sjálfstæði stofnunarinnar. Það eru ákveðnir fjármunir settir í það og hafa verið í fjármálaáætlun. Síðan er von á bandormi í haust sem lýtur að frekari uppfærslu á lögum, allt sem miðar að öflugri neytendavernd. Það er því mjög margt í gangi þegar kemur að því máli og við höfum sett frekari fjármuni í það líka.

Varðandi eldið, af því að hv. þingmaður spurði um það í fyrri umferð, þá erum við að vonast til þess að lagareldi vaxi í sjó og á landi þannig að það geti skilað allt að 400 milljónum í tekjur. Þetta eru svo gríðarlegir fjármunir, gríðarleg verðmæti sem þar eru undir og þess vegna er svo mikilvægt að okkur takist vel til og að við tryggjum sjálfbærnina frá upphafi til enda náttúrunnar vegna og atvinnustarfseminnar vegna í heild sinni.

Hvað varðar spurningu hv. þingmanns um Fiskeldissjóð, þá vissum við auðvitað af þessu. Markmiðið er að ná þarna einhvers konar samkomulagi milli þeirra sveitarfélaga sem hlut eiga að máli en eru með mismunandi hluta af starfsemi innan sinna raða þannig að það væri sanngjarnt hvernig gjaldinu væri skipt. Sveitarfélögin hafa kallað eftir því að koma að borðinu og hafa sannarlega verið tekin að borðinu. Ef við náum ekki samkomulagi þá þarf reglugerð til en fyrst munum við leita allra mögulegra leiða til að ná samkomulagi. Sú vinna er í gangi og við höfum enn þá einhvern tíma en úrslitaleiðin er reglugerð ráðherra til að ná þessari skiptingu.