fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra fyrir að vera til svars og ráðagerða varðandi sinn yfirgripsmikla málaflokk. Mig langar að byrja á því að fara inn í landbúnaðarmálin þar sem tölurnar tala sínu máli. Ég hef sömuleiðis heyrt þegar hæstv. ráðherra hefur átt í orðaskiptum við aðra hv. þingmenn varðandi það sem snýr að — eins og við sjáum svart á hvítu þá tala tölurnar sínu máli og það er lækkun á tímabilinu. En síðan kom ráðherra ágætlega inn á það í svari við hv. þm. Ólaf Adolfsson varðandi að það stæði yfir endurskoðun á búvörusamningum.
Mig langar að velta því upp við ráðherra að nú er staðan sú að væntanlega horfum við á næsta ári fram á gríðarlegar hækkanir á aðföngum vegna stríðsátaka fyrir botni Persaflóa eða í Íran. Við höfum tekist á við mjög svipaðar aðstæður hér þegar Úkraínustríðið fór af stað fyrir nokkrum árum. Þá greip ríkisstjórnin til sinna ráða hvað það varðar. Það eru sömuleiðis verkefni sem voru sett af stað, átaksverkefni varðandi kornið og síðan voru riðuverkefni og fleiri verkefni sem eru svo sem að fjara út í þessari fjármálaáætlun. En hefur ráðherra og ráðuneyti hennar gert einhverja framtíðargreiningu eða velt fyrir sér því höggi sem getur hugsanlega — við skulum ekki fullyrða neitt, en því miður hugsanlega — skollið hér á innlendri matvælaframleiðslu á næsta ári? Ég held að þetta ár sleppi fyrir horn, en ég tel það verulega líklegt, og kollegar okkar í bændastétt í Evrópu eru sama sinnis hvað það varðar, að þarna getum við horft framan í að aðfangahækkanir verði gríðarlegar.