157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[22:50]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið og býsna góða spurningu. Eins og hv. þingmaður kom inn á er hér um viðamikið ráðuneyti að ræða en ég ræð samt ekki öllu. Nú er það svo, eins og hv. þingmaður veit, að mótsamningsaðili Bændasamtakanna er raunverulega fjármálaráðuneytið þó að framkvæmdaraðilinn sé atvinnuvegaráðuneyti. Þannig að við erum nú tveir ráðherrarnir í þessu samtali og þessari vinnu við Bændasamtökin og erum auðvitað algerlega samstiga í því, allir aðilar máls. Það eru nýliðunin og kynslóðaskiptin og að finna framtíðarlausn eins og hægt er á þessu máli, sem er lykilatriði í þessu, til viðbótar síðan við allt annað sem við þekkjum og öll þau úrlausnarefni sem bændur eru almennt að glíma við og hv. þingmaður þekkir auðvitað margfalt betur en ég. Ég get því miður ekki glatt eða grætt hv. þingmann eftir atvikum með því að kasta fram neinni tölu en við erum í þessu samtali öll af vilja gerð. Það er margt undir. Það er margt hægt að gera. Ég er ekki í neinum vafa um að það verður ákall eftir meiri fjármunum og svo verðum við bara að sjá hvernig tekst til og hvað okkur tekst að gera, en það eru auðvitað bara þessi lykilatriði. Við erum að vinna að greiningum í þessari vinnu og erum þar af leiðandi ekki komin með verðmiða. En ég hygg að við séum sennilega sammála um að þetta sé ekki síðasta samtalið sem við munum taka hér á næstu vikum, mánuðum og jafnvel árum.

Það var eitthvað annað sem ég ætlaði að bæta við hérna í lokin varðandi þetta mál en ég ætlaði að segja að mér finnst alveg svakalega jákvætt, ekki það að ég hafi svo sem búist við einhverju öðru, að það koma allir að borðinu með mikinn vilja til samtalsins og að taka þetta áfram. Ég ætla bara að leyfa mér að segja, af því að ég vísaði, í samtali við annan hv. þingmann um sama mál, til samtals míns við finnskan kollega, landbúnaðarráðherra: Það hjálpar að vita að það er alls staðar verið að kljást við þessi mál. Nýliðun og kynslóðaskipti eru áskorun alls staðar í landbúnaði.