157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[23:03]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég dáist eiginlega að hv. þingmanni sem er farinn að gera það að listgrein sinni að túlka svör ráðherra hér á annan hátt en þau eru sögð. Þegar ég var að lýsa því áðan í andsvörum við annan hv. þingmann hvernig málum væri fyrir komið með virðisaukaskatt á einstaka atriði ferðaþjónustu, einstaka þætti ferðaþjónustu í öðrum löndum, þá fól það á engan hátt í sér skoðun mína á því hvernig þessum málum ætti að vera fyrirkomið (Gripið fram í.) heldur eingöngu að þannig væri það og ég hef ekki myndað mér neina skoðun á því heldur. Þetta var bara ábending, rétt eins og ábendingin um skattafslátt, eða hvað þetta nú heitir (BergÓ: Skattstyrkur. )— skattstyrkur, er komin frá OECD þegar um er að ræða lægra þrepið. Það var allt.

Bankaskatturinn, það má alveg tala um hann út frá alls konar leiðum. Ég ætla nú eiginlega að biðjast undan því að bera ábyrgð á eða ræða af einhverri dýpt einhverjar greinar eða orð þingmanna eða starfsmanna annarra flokka. Það að bankaskattur feli óhjákvæmilega í sér hærra verð til notenda á bankamarkaði, sem er fákeppnismarkaður vegna gjaldmiðilsins í bankakerfi okkar sem skilar vel um 100 milljörðum í hagnað, finnst mér ekki vera náttúrulögmál, svo ég segi það bara hreint út. Mér finnst það ekki algerlega sjálfgefið. Mér finnst þetta ekki versti skattur í heimi. Ég er alla jafna ekkert sérstaklega hrifin af þeim leiðum heilt yfir, alla vega ekki að þær séu ofnýttar, en ég ætla ekkert að gera því skóna eða taka undir þá skoðun hv. þingmanns, ef það er sú sem hann var að lýsa, að þessi skattur þurfi nauðsynlega að fela í sér að honum sé varpað beint yfir á notendur bankakerfisins. Inni á okkar fákeppnismarkaði hér tel ég það ekki endilega vera nauðsynlegt eða æskilegt. En þetta er umræða sem þarfnast meiri dýptar (Forseti hringir.) og væri eðlilegt að eiga við ráðherra málaflokksins.