157. löggjafarþing — 93. fundur,  14. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[23:07]
Horfa

atvinnuvegaráðherra (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið þrátt fyrir að mér þyki hv. þingmaður nú enn vera á sömu slóðum og hann var með þessar þráspurningar sínar um atvinnugrein sem heyrir ekki undir málefnasvið ráðherra. En gott og vel. Fyrri spurningin gerði það klárlega: Er atvinnuvegaráðherra meðvitaður um eða hefur hann heyrt rætt um fyrirhugaðar mögulegar hækkanir á virðisaukaskatti á öðrum þáttum innan ferðaþjónustunnar? Ekki mér af vitandi, er svarið. Hef ekki heyrt það, ekki orðið vör við það og ekki lesið það, enginn hefur stungið upp á því við mig og ég hef ekki stungið upp á því við neinn o.s.frv. En aftur biðst ég undan því að hafa skoðun á eða vitneskju um skoðanir annarra á þessum málaflokki. Þetta hefur ekki verið rætt formlega, ekki í mín eyru og ég kannast ekki við það, nei.

Varðandi síðan bankaspurninguna þá heyrir þessi löggjöf undir fjármálaráðuneytið. Ég ætla bara að … (Gripið fram í.) Nei, nei. Aftur: Ég verð að biðja hv. þingmann um að sýna mér smá þolinmæði af því að ég er raunverulega að reyna að svara frekar en að nota bara þessa setningu og vísa í forseta og segja: Hér er hv. þingmaður algjörlega úti á túni með spurningu sína. Ég bara þekki ekki rekstrartölur bankanna eins og þær eru og þetta er ekki spurning sem ég get svarað núna. En aftur segi ég: Hafi hv. þingmaður áhuga á að fara í dýpri umræðu, í samtal við mig um bankakerfið væri ég sannarlega til í það, en það verður þá að vera við einhverjar aðrar aðstæður. Ég stend hér uppi í pontu og ætla að ræða þau málefnasvið sem raunverulega heyra undir mitt ráðuneyti og ég hefði haldið, hv. þm. Bergþór Ólason, að þar væri af nægu að taka. En gott og vel.