Frestun á skriflegum svörum.
Forseta hafa borist bréf frá heilbrigðisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 896, um greiðsluþátttöku einstaklinga á hjúkrunarheimilum, frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, á þskj. 915, um frávísun einhverfra frá geðheilsuteymum heilsugæslu, frá Rósu Guðbjartsdóttur, og á þskj. 931, um stafrænt fullveldi Íslands, frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 882, um dvalarleyfi forsjáraðila, frá Karli Gauta Hjaltasyni. Þá hafa borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 930, um stafrænt fullveldi Íslands, frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, og á þskj. 951, um útgjöld ríkissjóðs til loftslagsmála, frá Eiríki Birni Björgvinssyni.
Einnig hefur borist bréf frá félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 941, um fullgildingu samþykktar Alþjóðavinnumálastofnunarinnar nr. 190 um aðgerðir gegn ofbeldi og áreitni, frá Sigurþóru Steinunni Bergsdóttur.
Að lokum hafa borist bréf frá mennta- og barnamálaráðherra og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 925 og 927, um stafrænt fullveldi Íslands, frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.