Störf þingsins.
Frú forseti. Þessa dagana er mikið rætt um verðbólguvæntingar fram og til baka. Það er ágætt að fara aðeins yfir hvað er átt við með verðbólguvæntingum. Verðbólguvæntingar endurspegla væntingar almennings og forsvarsmanna fyrirtækja um þróun verðlags og getur það haft áhrif á verðlagið. Það er alveg ljóst að fleiri þættir hafa áhrif á væntingarnar en metnaðarfullar áætlanir ríkisstjórnarinnar um hallalausan rekstur ríkissjóðs á næsta ári eftir áralangan hallarekstur fyrri ríkisstjórna og með Sjálfstæðisflokkinn í fjármálaráðuneytinu. Ég hef skilning á því að stjórnarandstaðan gagnrýni og dragi úr trúverðugleika áætlana ríkisins. Þar er hins vegar lagt til höggs langt fyrir neðan beltisstað hjá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins, með uppklappi þingmanna Miðflokksins, þegar þeir gera kjarabætur til aldraðra og öryrkja að blóraböggli varðandi þróun verðlags. Það er beinlínis ljótur leikur, frú forseti.
Það sama er uppi á teningnum þegar kemur að tímabundinni aðgerð stjórnvalda til lækkunar virðisaukaskatts á eldsneyti til að draga úr áhrifum hækkunar á olíuverði á heimsmarkaði. Í furðulegri andstöðu sinni við það mál berst stjórnarandstöðunni nú öflugur liðsauki frá Samtökum atvinnulífsins og frá frjálshyggjuhugvitinu Viðskiptaráði sem málar skrattann á vegginn, væntanlega til þess að verja olíufélögin. Eða hvað? Eða er þeim illa við að í frumvarpinu sé tryggt að lækkunin skili sér til almennings? Ábyrg samtök og félög eiga auðvitað að taka þátt í því með ríkisstjórninni að vinna gegn verðbólgunni og stuðla að hagfelldri þróun verðlags. Það er ekki bara hagur almennings, það er sameiginlegur hagur almennings og alls atvinnulífsins í landinu. Þingmenn ættu því allir, hvort sem þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, ásamt forystu Samtaka atvinnulífsins að hvetja aðildarfyrirtæki samtakanna til að sitja á sér hvað varðar verðhækkanir, hvort sem það eru smásölufyrirtæki, bankarnir eða leigufélögin. (Forseti hringir.) Margir kalla eftir þjóðarsátt en hún getur ekki eingöngu hvílt á herðum almennings og ríkissjóði heldur þurfa fleiri að koma að.