157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Sigurþóra Steinunn Bergsdóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Við sem störfum á vettvangi stjórnmála berum ríka ábyrgð gagnvart samfélaginu og fólkinu sem hér býr. Það sem mestu máli skiptir fyrir fólk er að daglegt líf gangi upp, að fólk hafi húsnæði, atvinnu og öryggi og að börn búi við gleði og öryggi í sínu umhverfi og fái góða menntun. Í þessu samhengi gegna sveitarfélög lykilhlutverki. Þau eru næst fólkinu og sinna nærþjónustunni sem skiptir hvað mestu máli í daglegu lífi. Á undanförnum árum hafa sveitarfélögin tekið að sér sífellt fleiri verkefni frá ríkinu, sem hefur kallað á aukið álag og flóknari verkaskiptingu, sem hefur aftur kallað líka á átök milli ríkis og sveitarfélaga, aðallega um peninga. Það er eðlilegt að tekist sé á milli stjórnsýslustiga en hættan er sú að venjulegt fólk, sem vill láta sitt daglega líf ganga, lendi á milli. Þess vegna er lykilatriði að ríki og sveitarfélög vinni saman, að ábyrgð sé skýr og fjármagn fylgi verkefnum.

Virðulegi forseti. Í nýlegu útspili Samfylkingarinnar um daglegt líf er einmitt lögð áhersla á þessi samvinnuverkefni, t.d. það sem snýr að samþættingu heimaþjónustu, einföldun regluverks og svo lögfestingu réttar til leikskóla. Mig langar að ræða það sérstaklega. Það er óásættanlegt að réttur til leikskólavistar sé ekki lögfestur á Íslandi eins og á öðrum Norðurlöndum. Leikskólar eru hornsteinn samfélagsins fyrir börn, foreldra og atvinnulíf. Uppbygging leikskólakerfisins hefur verið alfarið í höndum sveitarfélaga og má nefna að þar átti R-listinn í Reykjavík stóran þátt í að búa til leikskólaumhverfi eins og við þekkjum það í dag, umhverfi sem við lítum á sem sjálfsagðan rétt. En rétturinn er ekki lögbundinn. Ég tel mikilvægt að löggjafinn efni til góðrar umræðu um hlutverk og stöðu leikskóla í samfélaginu og hvernig við viljum standa að framtíðaruppbyggingu þessa fyrsta skólastigs. Það er ekki hægt að setja það eingöngu á sveitarfélög.

Virðulegi forseti. Hlutverk okkar er að tryggja að kerfin vinni fyrir fólk, ekki öfugt. Með raunverulegri samvinnu ríkis og sveitarfélaga getum við einfaldað lífið, dregið úr álagi á fjölskyldur og skapað samfélag þar sem fólk fær að blómstra og tekur ábyrgð hvert á öðru.