157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:08]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Til meðferðar í hv. utanríkismálanefnd er þingsályktunartillaga hæstv. utanríkisráðherra um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Burt séð frá álitaefnum um orðalag á kjörseðli, en framkvæmd atkvæðagreiðslunnar er til meðferðar hjá hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, er í stórum dráttum hægt að svara spurningunni játandi eða neitandi. Nú liggur það sennilega betur fyrir hvað gerist ef við kjósum með því að halda viðræðum áfram. Þá hefjast aðildarviðræður við Evrópusambandið eftir þeim reglum sem um slíkar viðræður gilda. Ég veit, frú forseti, að það hefur verið rætt og ritað um að við verðum að vita betur hvernig viðræðurnar verða, hver séu raunveruleg samningsmarkmið o.s.frv. En í þetta sinn hirði ég ekki um þau álitaefni.

Frú forseti. Hvað gerist ef við segjum nei? Ég sleppi öllum frösum enda eru þeir allir fyrir löngu sér til húðar gengnir. Við munum ekki vita hvernig samningurinn getur litið út. Við munum ekki vita hvort það sé mögulegt að fá varanlegar undanþágur frá reglum Evrópusambandsins og munum ekki vita hverjar þær gætu verið. Við munum ekki vita hvort við getum fengið tímabundnar undanþágur Evrópusambandsins og við munum ekki vita hverjar þær gætu verið. Við munum ekki vita, þar sem við höfum þegar innleitt það mikið af regluverki sambandsins vegna samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, hvort við þurfum að bæta við það í viðræðunum sjálfum. Við munum ekki vita hvort og þá hvernig Evrópusambandið tekur í hugmyndir okkar um yfirráð yfir sjávarútveginum. Við munum ekki vita hvort og þá hvernig hugsanlegt er að semja við Evrópusambandið um íslenskan landbúnað. Við munum ekki vita hvort við getum strax tengt krónuna okkar við evrusamstarfið með þeim jákvæðu afleiðingum sem það myndi hafa.

Frú forseti. Við munum ekki fá að kjósa um það hvort okkur hugnist samningurinn eða ekki.