Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Síðast þegar ég tók hér til máls undir þessum lið fjallaði ég um að börnum og unglingum liði því miður ekki öllum vel og að þau væru mörg hver að glíma við kvíða og þunglyndi. En það er líka mikilvægt að tala um jákvæða hluti sem snúa að þessum aldurshópi. Íslensk ungmenni taka almennt mjög virkan þátt í fjölbreyttum verkefnum þar sem hæfileikar þeirra fá að njóta sín og þau fá að blómstra. Í íþróttum hafa íslensk ungmenni t.d. náð frábærum árangri, bæði innan lands og á alþjóðavettvangi. Á sviði menningar og lista er þátttaka ungmenna gríðarlega mikil. Þá má t.d. nefna keppnir á borð við Söngkeppni framhaldsskólanna og Músíktilraunir, sem hafa veitt ungum tónlistarmönnum tækifæri til að stíga sín fyrstu skref á sviði og sum geta sýnt sína eigin sköpun. Þar hafa margir framtíðarlistamenn fengið að skína og öðlast dýrmæta reynslu. Ungmenni á Íslandi hafa einnig sýnt metnað á fleiri sviðum, t.d. í spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur, eða í gagna- og upplýsingalæsiskeppninni Greindu betur, sem er haldin á vegum Hagstofu Íslands og Evrópsku hagstofunnar þar sem lögð er áhersla á hæfni til að skilja og túlka tölulegar upplýsingar. Svo má ekki gleyma Stóru upplestrarkeppninni og keppnum í stærðfræði og eðlisfræði þar sem þau fá tækifæri til þess að sýna hæfileika sína á þeim sérsviðum. En hæfileikar þeirra og áhugi koma ekki bara fram í keppnum, þó svo að ég taki það hér sem dæmi.
Virðulegi forseti. Þessa dagana verð ég var við mikinn áhuga ungs fólks á samfélagsmálum og mikið af ungu fólki er að ganga til liðs við Uppreisn, ungliðahreyfingu Viðreisnar. Það er gott og jákvætt þegar ungt fólk vill láta málefni samfélagsins sig varða og láta í sér heyra. Það er mikilvægt að draga fram og fjalla um jákvæðar hliðar á því sem börn og ungmenni á Íslandi eru að fást við því þau eiga það svo sannarlega skilið.