157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:24]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Nú stendur yfir þing Kennarasambandsins og því rétt að fara aðeins yfir tölfræði sem blasir við börnunum okkar. Við erum bókaþjóð og ríkasta þjóð heims með ómetanlegar auðlindir úti um allt land. 40% nemenda eru ekki með grunnfærni í lesskilningi eftir tíu ára skyldunám og tveggja til þriggja ára nám í leikskólum. 3% nemenda eru með afburðafærni í lesskilningi, þrisvar til fjórum sinnum lægra hlutfall en í nágrannaríkjum okkar. Í STEM-greinum, sem eru oft kenndar við nýsköpun og frumkvöðlastarf, eru 2% nemenda með afburðafærni, fjórum til fimm sinnum lægra en í nágrannalöndum okkar. 75% stúlkna finna fyrir kvíða vikulega eða oftar og 55% fyrir depurð vikulega eða oftar. Ungmenni hafa aldrei verið jafn einmana og í dag og hafa tekið fram úr elsta aldurshópnum. Þetta er staðan á ungmennunum okkar í dag.

Mikil óánægja hefur verið með einkunnakerfi við útskrift nemenda úr grunnskóla og jafnræði þar lítið sem ekkert. Samræming námsmats er óásættanleg og gengur í berhögg við gildandi námskrá en meginmarkmið hennar er að samhæfa og samræma nám. Á síðustu árum hefur skólastarf þyngst verulega mikið með miklum fjölda barna með annað móðurmál en íslensku. Munum það að skólarnir eru fyrir börn og ungmenni. Nú birtist í fjármálaáætlun blóðugur niðurskurður ríkisstjórnarinnar í þessum málaflokkum, blóðugur niðurskurður á meðan aðrir málaflokkar belgjast út. Ætli verði rætt um þetta á þingi Kennarasambandsins? Hver er forgangsröðun ríkisstjórnarinnar í þágu menntunar og barna miðað við þá stöðu sem uppi er? Hver verður niðurstaða þings Kennarasambandsins nú þegar þessi fjármálaáætlun hefur verið birt? Ætli þessi mál verði rædd þar? Spyr sá sem ekki veit.