Störf þingsins.
Frú forseti. Ég hef reglulega rætt á síðustu árum um mikilvægi þess að þyrla sé sett upp á vegum Landhelgisgæslunnar á Akureyrarflugvelli til að sinna norðurhluta landsins og miðunum þar út af. Mig langaði að vekja athygli á mjög fróðlegri ráðstefnu sem verður haldin við Háskólann á Akureyri á morgun á vegum Varðbergs, Norðurslóðanetsins, Landhelgisgæslunnar, dómsmálaráðuneytisins og Háskólans á Akureyri um ábyrgð, eftirlit og öryggi á norðurslóðum, samskipti borgaralegra og hernaðarlegra aðila við leit og björgun. Hér er þá fyrst og fremst um leit og björgun í Norður-Atlantshafi að ræða. Ég tel, og átti um það samræður við hæstv. utanríkisráðherra í gær í tengslum við fjármálaáætlun 2027–2031 sem við ræddum hér í gær, að þetta væri rakið verkefni sem snýr að þyrlumálunum, að það yrði inni í þessu 1,5%. Ég held að þessi ráðstefna sé einmitt mjög fróðleg í samhengi við það. Við sjáum að það sem verður tekið fyrir á ráðstefnunni snýr að siglingaleiðum á norðurslóðum. Það snýr að öryggisfjarskiptum, gervihnöttum og slíku, fjarskiptum á norðurslóðum og ýmislegu sem tengist þeim málum. Það eru sérfræðingar og erindi frá Tromsø þar sem björgunarmiðstöð Noregs er rekin fyrir hafið og síðan frá Evrópusambandinu sem snýr að gervihnöttum. Ég hvet bara alla til að kynna sér þetta og bendi þingmönnum á að þetta verður líka sent út á netinu. Ég hvet þá til að kynna sér þau mál sem snúa að þessu vegna þess að ég held þetta sé eitt af þeim grundvallarmálum sem er mjög mikilvægt að koma í lag hér í Norður-Atlantshafi og að þegar við erum að tala um öryggis- og varnarmál á svæðinu þá sé þetta hreinlega hluti af innleggi sem væri eðlilegast að Íslendingar kæmu að, inn í þessi 1,5%.