157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:29]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S):

Frú forseti. Mig langar hér, ótrúlegt en satt, að ræða störf þingsins eða öllu heldur störf forsætisráðuneytisins. Síðastliðinn laugardag stóð hæstv. forsætisráðherra á bílaplani í Kópavogi og kynnti þar nýjasta útspil Samfylkingarinnar í sveitarstjórnarmálum þar sem lofað var 16 milljarða útgjöldum ríkisins þrátt fyrir að hinir stjórnarflokkarnir væru ekki hafðir með í ráðum, sem er auðvitað galið. Ég vil taka það fram að það truflar mig persónulega ekkert að Samfylkingin noti hina stjórnarflokkana eins og gólfmottu fyrir utan dyr ríkisstjórnarheimilisins. Það er bara eitthvað sem þau þurfa að ræða á sínum fallegu sameiginlegu þingflokksfundum. Það sem ég vil vekja athygli á, frú forseti, og hreinlega skil ekki að hafi ekki orðið að meira máli til að mynda í fjölmiðlum, er sú misbeiting á valdi sem birtist í því hvernig boðað var til þessa fundar og hversu ólýðræðislegt það er að forsætisráðuneytinu skuli beitt til að gefa kosningaloforðum eins stjórnmálaflokks meira lögmæti en tilefni er til. Nú var það ekki Samfylkingin sem boðaði til þessa fundar heldur forsætisráðuneytið. Fundarboðið kom beint úr Stjórnarráðinu, frá aðstoðarmanni ráðherra, úr netfangi frá ráðuneytinu. Þarna er sjálfu forsætisráðuneytinu beitt í pólitískum tilgangi fyrir einn stjórnmálaflokk. Það er auðvitað ekkert nýtt og við höfum séð það margoft að Samfylkingin gerir bara það sem henni sýnist eftir að hún tók við stjórnartaumunum. En þetta er eitthvað allt annað. Það er einfaldlega, frú forseti, að öllu leyti óboðlegt í lýðræðisríki að beita valdamesta embætti Stjórnarráðsins með þeim hætti sem Kristrún Frostadóttir gerði hér um liðna helgi, enda keppast nú kollegar hennar í ríkisstjórninni við það að bera af sér þessi kosningaloforð, nú síðast í morgun hæstv. fjármálaráðherra í viðtali í Morgunblaðinu. Ég hef fullan skilning á því að Samfylkingin skjálfi á beinunum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, sér í lagi í Reykjavík þar sem arfleifð hennar verður að taka lifrarpylsu úr munni barna. En það er ekkert annað en misbeiting á valdi og ólýðræðislegt í alla staði að beita sjálfu forsætisráðuneytinu í pólitískum tilgangi fyrir einn stjórnmálaflokk.