157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

Störf þingsins.

[15:34]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Í gær hófst fyrri umræða um fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar fyrir árin 2027–2031. Þar er mörg góð tíðindi að finna. Við erum að ná hallalausum fjárlögum árið 2027 í fyrsta skipti síðan 2018, tekjur ríkisins sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru að dragast saman, þ.e. skattbyrði er að minnka, og sömuleiðis útgjöld ríkisins. Þannig að umsvif ríkisins eru að minnka á tímabili áætlunarinnar, sem styður vel við Seðlabankann og við það markmið að lækka verðbólgu og vexti.

Það eru mörg fleiri góð tíðindi, stór sem smærri. Hér vildi ég sérstaklega vekja athygli á einu sem varðar málefnasvið 25 sem er hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta. Þannig er að í fyrra, vorið 2025, var í fjáraukalögum bætt við 350 millj. kr. til SÁÁ, Stuðla, Hlaðgerðarkots, Krýsuvíkursamtakanna, Rauða krossins og Landspítala til að mæta frekari þörf fyrir úrræði við fíknivanda. Sömuleiðis gerði meiri hlutinn tillögu um það í síðustu fjárlögum að bæta við 375 millj. kr. í þennan afar mikilvæga málaflokk svo að við gætum haldið áfram að gera betur við þau sem glíma við veikindi á þessu sviði.

Nú kemur fram í greinargerð með fjármálaáætlun undirmál á sviði 25, sem er hjúkrunar- og endurhæfingarþjónusta, að fjárveitingar málefnasviðsins hækki um 28,9 milljarða kr. á tímabili fjármálaáætlunar, fyrst og fremst vegna mikillar fjölgunar hjúkrunarheimila á tímabilinu en einnig er tímabundið fjárframlag til styrkingar meðferðarúrræða og annarrar endurhæfingar árið 2026 gert varanlegt. Hér er um frábær tíðindi að ræða. Þetta gerir það vonandi að verkum að við þurfum ekki að sitja uppi með það að samtök sem sinna þessu afar mikilvæga starfi fyrir okkar samfélag þurfi að koma á hverju einasta ári til fjárlaganefndar og biðja um styrk fyrir sínum rekstri með tilheyrandi ófyrirsjáanleika. Hér er verið að festa þau framlög í sessi sem bætt var í árið 2026 og því fagna ég mjög.