157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[15:36]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Nú verður fram haldið umræðum um málefnasvið fagráðherra. Ráðherrar hefja umræðu um sín málefnasvið og hafa til þess fimm mínútur. Að lokinni ræðu ráðherra flytja þingmenn ræður; einn til tveir frá hverjum stjórnarandstöðuflokki og einn frá hverjum stjórnarflokki að undanskildum þingmönnum úr flokki viðkomandi ráðherra. Ræður þingmanna eru tvær mínútur í fyrra sinn og tvær mínútur í síðara sinn og hefur ráðherra jafnlangan tíma á móti. Við lok umræðunnar munu fjármála- og efnahagsráðherra og fulltrúi frá hverjum þingflokki fá tíu mínútur hver til að ljúka umræðunni. Andsvör verða ekki leyfð.