fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Þessi fjármálaáætlun sendir skýr skilaboð: Börn landsins eiga ekki að sitja á hakanum. Menntun og velferð barna á ekki að vera aukaatriði í ríkisrekstri. Þetta eiga að vera forgangsmál og það er einmitt það sem við erum að gera. Framlög til málefnasviða mennta- og barnamálaráðuneytisins aukast um rétt tæpa 5 milljarða kr. árið 2027 frá gildandi fjármálaáætlun. Við gerum það af því að samfélag sem fjárfestir ekki í börnunum sínum er samfélag sem er að bregðast eigin framtíð. Já, við búum enn við verðbólgu og háa vexti. Já, við þurfum að sýna ábyrgð í ríkisfjármálum. En ábyrgð í ríkisfjármálum felst ekki í því að skera niður þar sem sársaukinn er mestur. Hún felst í því að forgangsraða fjármununum rétt.
Í barnamálum er ráðist í verulega uppbyggingu með 2,8 milljarða kr. aukningu árið 2027 frá gildandi fjármálaáætlun. Þar er stærsti liðurinn 1,4 milljarða framlag til að mæta rekstrarvanda Barna- og fjölskyldustofu. Þar erum við að tala um þjónustu við börn sem eru í viðkvæmustu stöðunni, börn sem mega ekki við því að kerfið hiksti. Við eigum aldrei að sætta okkur við að þau börn sem mest þurfa á okkur að halda verði afgangsstærð í fjárlögum. Við fylgjum eftir nýjum barnaverndarlögum af alvöru, ekki bara með fallegum orðum heldur með fjármagni og með ábyrgð því lög ein og sér bjarga engu barni nema viljinn sé fyrir hendi til að láta kerfið virka.
Ráðist verður í uppbyggingu nýs meðferðarheimilis fyrir börn í Garðabæ. Það er mikilvægt skref. Þar verður lögð áhersla á öryggi, fagmennsku og aðstöðu sem hæfir þeim börnum og þeim ungmennum sem þar þurfa að fá hjálp. Við viljum líka eyða biðlistum barna; ekki minnka þá aðeins, ekki skoða þá, ekki setja þá á starfshóp, við viljum eyða þeim. Þess vegna verjum við sérstökum 350 milljörðum kr. til að stytta biðlista hjá Ráðgjafar- og greiningarstöðinni á næsta ári og árið 2028 verður sú fjárhæð tvöfölduð. Margir foreldrar þurfa að sætta sig við að barnið þeirra sé sett á bið. Börn og biðlisti eru tvö orð sem eiga aldrei heima í sömu setningu.
Virðulegi forseti. Í framhaldsskólunum horfum við líka til framtíðar en framtíðin byggist á pólitískum ákvörðunum. Framlög til framhaldsskóla aukast frá gildandi fjármálaáætlun um 1,3 milljarða kr. árið 2027, um 1,1 milljarð kr. árið 2028 og um 400 millj. kr. árið 2029. Þetta er yfirlýsing um það að við ætlum ekki að láta unga fólkið okkar dragast aftur úr. Stækkun fimm verknámsskóla er hluti af þeirri stefnu. Framkvæmdir eru komnar af stað í Breiðholti og í rauninni hillir þar nánast undir verklok. Fram undan eru verkefni á Suðurnesjum, Akureyri, Ísafirði og á Sauðárkróki. Þetta skiptir máli vegna þess að verkmenntun hefur of lengi verið vanmetin í pólitískri umræðu. Við erum að tala um fjárfestingu upp á yfir 8 milljarða kr. þegar hlutur sveitarfélaga er talinn með. Það sýnir að hér er ekki verið að boða stefnu í orði, hér er verið að framkvæma hana.
Í grunnskólamálum verður m.a. unnið að umbótum í lestrarkennslu og bættum námsgögnum í raunvísindum og mati á árangri í skóla. En við megum heldur ekki horfa fram hjá því sem skiptir öllu máli inni í skólastofunni; líðan barna, staða kennara og sú staðreynd að of margir í skólakerfinu eru að bera of þungar byrðar. Við verðum að styðja við þá sem halda uppi skólastarfinu dag eftir dag. Það sem skiptir máli er hvort stjórnvöld séu tilbúin að standa með skólafólki þegar á reynir. Árið 2027 aukast framlög um 700 millj. kr. frá gildandi fjármálaáætlun í verkefni tengd innbyltingu og íslenskukennslu. Það er ofurmikilvægt. Börn sem hafa íslensku sem annað tungumál eiga ekki að mæta lokuðum dyrum í íslensku samfélagi, þau eiga að fá raunveruleg tækifæri.
Í íþrótta- og æskulýðsmálum ætlum við einnig að halda áfram að byggja upp aðstöðu og tækifæri. Ný þjóðarhöll mun styrkja umgjörð afreksíþrótta en það má aldrei gleymast að íþróttir eru ekki bara fyrir afreksfólk. Þær eru líka eitt sterkasta tækið sem við eigum til að efla sjálfstraust og þátttöku barna og ungmenna. Íþróttastarf á svo stóran og beinan þátt í krökkunum okkar og í að færa þau í rétta átt frá ýmiss konar áhættuhegðun og kemur í veg fyrir að þau misstigi sig. Þess vegna skiptir miklu máli að styðja áfram við svæðisstöðvar, sérstaklega í íþróttahéruðum, þegar kemur að börnum í viðkvæmri stöðu. Þetta er hluti af þingsályktunartillögu um framkvæmdaáætlun um farsæld barna sem nú liggur fyrir þinginu.
Virðulegi forseti. Við stöndum frammi fyrir skýru vali í pólitík. Ætlum við bara að tala um börnin eða ætlum við að setja þau í fyrsta sæti? Ætlum við að sætta okkur við biðlista, ójafnræði í kerfi sem nær ekki til allra eða ætlum við að axla ábyrgð? Það eru enn mörg verkefni fram undan en stefna okkar er skýr: Við ætlum að bæta hag barna, við ætlum að bæta árangur í menntakerfinu og við ætlum að gera það með samfélagið allt með okkur; þingið, kennarana, foreldrana, ungmennin og börnin sjálf.