fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir afar gott innlegg sem er í rauninni að spanna nákvæmlega það sem ég hef í huga sem menntamálaráðherra. Hann talar hér um börn sem eru með annað tungumál en íslensku; ætlum við að vera með einhverja sérstaka móttökuskóla fyrir þau? Ég hafði hugsað mér það þannig að í kennslustofunni væri kennt á íslensku og börnin okkar sem eru með annað tungumál fengju tækifæri í sama skóla. Þetta er allt á byrjunarstigi, þetta er allt í samtali núna, en þau eiga að fá tækifæri til að læra íslensku samhliða; börnin sem tala íslenska tungu eru í annarri stofu en þau eiga möguleika á því að hitta þau frammi á gangi í frímínútum og frítímanum og í hádeginu og í félagsstarfinu og öllu öðru slíku. Það er risaverkefni. Það er líka rétt. Hér mun verða meira gagnsæi. Ég vil sjá meira gagnsæi. Ég vil fá meiri skilning upp á borðið í því sem lýtur að einkunnagjöf. Jú, gildandi námskrá verður tekin til gagngerðrar endurskoðunar. Það er nú fleira sem hv. þingmaður nefnir og ég mun líka skoða fjölda nemenda í bekk. Það eru allt of margir nemendur í hverri skólastofu með tilliti til þess að kennarinn, sem á að kenna öllum þessum fjölda barna með mismiklar greiningar og mismörg tungumál, hefur of lítinn stuðning. Okkur skortir talmeinafræðinga, okkur skortir félagsráðgjafa, okkur skortir fleiri sálfræðinga, okkur skortir sárlega meiri stuðning og við megum ekki missa þann dýrmæta auð sem felst í kennarastéttinni okkar sem í rauninni er sú stétt sem byggir framtíð samfélagsins. Við byggjum framtíð okkar og barnanna okkar á því að vera með góða og öfluga kennarastétt og við verðum að styðja við hana og koma í veg fyrir að þeir fari og finni sér eitthvað annað að gera. En þetta er nú svona bara lítilræði. Það er í rauninni allt sem hv. þingmaður nefndi hér sem er á mínu teikniborði, við mismikinn fögnuð eins og gengur og gerist. En í sambandi við einkunnagjöf í tölustöfum: Það voru hvorki meira né minna en tæp 90% landsmanna sem óskuðu eftir því að fá tölustafi. Innan við 10% var sama, eða frá 88% upp í 96,5%, en 2,6% sögðu nei (Forseti hringir.) við viljum fá A, B, C. — Ég er ekki að fara að hlusta á þessi 2,6%, ég hlusta á samfélagið, foreldrana og börnin sjálf sem eru að biðja um þetta.