157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:02]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. menntamálaráðherra fyrir að heiðra okkur með nærveru sinni hér í dag og ræða þessi mikilvægu mál sem eru menntamálin. Ég má til með að óska ráðherranum til hamingju með ágætar yfirlýsingar á sviði menntamála að undanförnu sem hafa, eins og fram kom fyrr í þessari umræðu, ekki fallið í frjóan jarðveg alls staðar. En það þarf að halda áfram þótt á móti blási og þar nýtur hæstv. ráðherra hvatningar minnar, t.d. er varðar einkunnagjöf og aðra þætti. Kannski að við komum betur að því síðar.

Við erum að tala um fjármálaáætlun og fjármuni sem fara inn í menntamálin. Það var t.d. fjallað um það hérna á dögunum — og það eru ákveðin spor sem hræddu mig persónulega þegar ég las um páskaeggjagjafir hæstv. ráðherra upp á 450.000 kr. fyrir eggin og 250.000 kr. fyrir öskjurnar í miðjum aðhaldsaðgerðum og verðbólguskoti. En þá var sagt að þetta hefði verið óheppilegt. Þó að menn geti ekki skilað páskaeggjunum þá fer þetta vonandi í betri átt í framhaldinu.

Ég vildi óska eftir því hvort ég fengi það fram frá hæstv. ráðherra í heildarsamhengi þessarar fjármálaáætlunar, vegna þess að núna eru framlög til menntamála að dragast saman hægt og rólega á næstu árum samkvæmt þessu á meðan við sjáum t.d. hlutfallslega langmesta aukningu til utanríkismála í þessari fjármálaáætlun, hvort sem það eru varnarmál eða stuðningur við Úkraínu eða alþjóðasamvinna, hvað finnst hæstv. ráðherra um slíka forgangsröðun í þessari fjármálaáætlun? Við getum nefnt málaflokka á borð við menntamál, við getum nefnt ýmsa flokka. Eru utanríkismálin, að mati hæstv. menntamálaráðherra, slíkur flokkur á þessum síðustu og verstu tímum — það er augljóslega mat margra, en hvort það sé mat hæstv. ráðherra — sem er hvað mest aðkallandi í rekstri þessa samfélags einmitt á þessari stundu?