fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið sem svaraði þó ekki alveg því sem ég óskaði eftir svari við, sem er sú pólitíska forgangsröðun að utanríkismálin séu hlutfallslega að hækka mest í þessari fjármálaáætlun. Í orði kveðnu geta hæstv. ráðherrar auðvitað komið hér upp og fjallað um að menntun sé sett í öndvegi en við sem stöndum utan við málið þurfum að horfa í tölurnar og álykta út frá því hvað er sett í öndvegi. Það eru utanríkismál í þessari fjármálaáætlun, hvort sem horft er til þróunarsamvinnu, stuðnings við Úkraínu eða annarra utanríkismála sem þar er vísað til. Það er afstaða til þess þáttar sem ég óskaði eftir frá hæstv. ráðherra, ef hún gæti lýst því.
Að öðru leyti fjallaði ég um að ég styddi ákveðnar hugmyndir sem hafa komið fram af hálfu hæstv. ráðherra, eins og t.d. með einkunnakerfið. Ég held að rétta leiðin sé einfaldlega að hafa almennileg samræmd próf við lok grunnskóla og jafnvel, og eiginlega helst miðað við hvernig þetta lítur út, að styðjast við þau samræmdu próf við inntöku í framhaldsskóla. Hæstv. ráðherra vísaði til mikillar inntöku í framhaldsskólana. Auðvitað er það mikið ferli en það hafa verið gerðar alvarlegar og margvíslegar athugasemdir við inntökuferlið. Ekki skánaði málið með frumvarpi hæstv. ríkisstjórnar hérna um árið, sem ég gagnrýndi nú mjög, sem fjallaði um að taka þar inn í umsóknarferlið, eða veita skólunum heimild eins og þar sagði en í raun var verið að hvetja þá til þess, allt aðra þætti en framúrskarandi námsárangur. Það var verið að tala um að taka þar inn hluti eins og menningarbakgrunn eða hvort menn væru af erlendu bergi brotnir, jafnvel vísað til kynhneigðar eða fötlunar og annað eins, einhverjar svona „woke“ pælingar í tengslum við innritun í framhaldsskóla sem voru leiddar í lög nýlega. Núna þegar við erum að gera þetta hlutlægara og sanngjarnara og láta fólk njóta jafnræðis og horfa í árangurinn, væri hæstv. ráðherra ekki fylgjandi því að vinda ofan af þeim sjónarmiðum sem þar komu fram og fara heldur í horfið eins og það var hér þegar við gátum reitt okkur á að þessi inntaka væri meira og minna eftir hlutlægum mælikvarða? Það styð ég.