fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara innlegg sitt hér, mjög gott, en ég kýs að tjá mig ekki um utanríkismálin almennt hér í minni umsögn um fjármálaáætlun. Það vita það náttúrlega allir að ég er formaður Flokks fólksins og segi alltaf: Fólkið fyrst og svo allt hitt. Ég tala um forgangsröðun fjármuna þannig að ég býst við því að hv. þingmaður átti sig á því að ef ég réði hér ríkjum og væri einhver einræðisherra, sem ég er alls ekki, þá hugsanlega væri mælistikan svolítið mikið öðruvísi á því hvernig við erum að ráðstafa okkar fé. Við erum ekki fjölskipað stjórnvald þannig að við skulum átta okkur á því að það er hvert og eitt ráðuneyti, alveg eins og hv. þingmaður nefnir páskaeggin og ég veit ekki hvað og hvað sem í rauninni — ef ég hefði átt að sjá um þessi páskaegg sjálf þá hefði það kannski verið nr. 100 með tilliti til þess að á þessum 12 vikum sem ég hef verið í ráðuneytinu hef ég bara aldrei vitað annan eins dugnað. Hvernig á maður að sýna það í verki, hvernig á maður að sýna móralskt, að maður styðji í rauninni og sé þakklátur fyrir vel unnin störf? Það er af veikum mætti og litlum efnum í þessu tilviki sem maður er að reyna að gleðja fólkið sitt og ég hika ekki við að gera það ef því er að skipta.
En þegar við erum að tala um innritun og annað slíkt í skólana okkar: Það er alveg rétt, ég hef verið að tala um að stíga inn í það sem við höfum kallað skóla án aðgreiningar sem var ágætis hugmyndafræði til að byrja með og falleg hugsun en þegar við erum að mæta stórum áskorunum, mikilli fjölmenningu inni í bekkjum og mikið af fötluðum börnum með sérþarfir, og við höfum ekki nógu mikinn stuðning inn í bekkina þá er í rauninni ekkert barn í bekknum sem fær að njóta sín og sinna verðleika. Því miður er það bara staðreynd. Við þurfum að gera miklu betur og við þurfum í rauninni að stokka það upp. Við getum ekki boðið börnum upp á það að vera 26 saman með tíu, tólf greiningar og kannski jafn mörg tungumál inni í sama bekk og kannski einn, tvo kennara sem hafa lítinn annan stuðning inni í bekknum til að aðstoða við kennslu barnanna. (Forseti hringir.) Við erum með risaverkefni í fanginu, hv. þm. Snorri Másson, og við ætlum að vinna það vel. Ég ætla að vona að við gerum það saman.