fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þetta. Eins og ég nefndi er þetta málaflokkur sem getur teygt sig þvert á ráðuneyti. Hæstv. ráðherra kom einmitt inn á það sem ég ætlaði að fara hér aðeins inn á í minni seinni innkomu hér í þessum lið fjármálaáætlunar, og hefur verið talsvert mikið til umfjöllunar í samfélaginu, og það er sú staða sem hefur myndast að stundum eru foreldrar að sækja erlendis með börnin sín vegna þess að annaðhvort eru úrræðin ekki til hér eða þá hreinlega að foreldrar treysta ekki úrræðunum hér. Við skulum alveg hafa það á hreinu að það er líka staðan og við getum ekki lokað augunum fyrir því. Ein af aðgerðunum sem var talað um og kom út úr starfi þessa aðgerðarhóps, sem ég hygg að hæstv. ráðherra hafi vísað til áðan, var einmitt að auðvelda fólki að leita erlendis ef sambærileg úrræði eru ekki í boði. Ég vil nú stundum meina það að stundum er þetta þannig að ungmenni, og jafnvel foreldrar þeirra, vilji kannski líka komast í burtu frá öllu. Þannig að svona starf í útlöndum ætti að geta verið valkostur jafnvel þótt úrræðið sé til hérna heima. Það er kannski flókið að útfæra það en mér finnst a.m.k. að við ættum ekki að útiloka það.
Mig langaði bara að inna hæstv. ráðherra eftir því, af því þetta heyrir að einhverju leyti undir barnamálaráðuneytið og að einhverju leyti auðvitað undir heilbrigðisráðuneytið líka: Hversu langt er þetta komið og hvernig er þetta hugsað? Eru menn að hugsa um einhvers konar samstarf við einhverjar tilteknar meðferðarstöðvar í einhverjum tilteknum löndum? Eru menn að horfa til Norðurlandanna? Foreldrar hafa verið að fara til Suður-Afríku í einhverja tiltekna stöðu þar. Eðlilega vakna alltaf spurningar um það: Hver er úttektin á þessu? Hverjir eru samningarnir um þetta? Að hve miklu leyti geta foreldrar sem þurfa að fara þessa leið vænst þess að sjúkratryggingar taki þátt í því og auðveldi mönnum að gera þetta? Þetta eru svona margþættar spurningar og mig langar bara að spyrja hæstv. ráðherra: Veit hann hversu langt þetta er komið og hversu langt þetta eigi í raun og veru að ná; hvort þetta eigi að vera til staðar jafnvel þó að mál séu kannski komin á betri stað hér heima?