157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:25]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Hins vegar vekur þetta bara upp fleiri spurningar. Nú átti að mæla fyrir þessu máli hér í mars, þegar kemur að gjaldfrjálsum námsgögnum. Málið hefur ekki komið hér fram og nú segir ráðherra að verið sé að vinna þetta betur. Þetta er farið út úr fjármálaáætlun til 5 ára, setningin er hreinlega bara farin út. Ég velti fyrir mér: Ef verið er að vinna þetta, af hverju er verið að taka setninguna út? Er kannski bara hreinlega verið að hætta við þetta allt saman? En mig langaði til að beina orðum mínum að framhaldsskólunum sem fá úthlutun á grundvelli viss reiknilíkans. Í tengslum við það að við sjáum að rekstur framhaldsskólanna — í nýrri skýrslu sem var gefin út kemur fram að 14 af 30 skólum hafa verið í hallarekstri frá árinu 2023 og nú eru skýr skilaboð til skólameistara um að hagræða enn frekar og 4 milljarða hagræðing kemur fram í fjármálaáætlun. Á meðan við sjáum fram á þessa hagræðingarkröfu þá sjáum við að ekki er verið að taka nægjanlegt tillit til kerfislægra þátta eins og tegundar náms, þjónustuþarfar nemanda og hlutfalls nemenda með sértækar þarfir, sérstaklega þegar við sjáum núna aukningu í fjölda nemenda á sérnámsbrautum og starfsnámsbrautum. Ég veit að framhaldsskólar hafa verið að leggja sig fram við að reyna að innrita alla þessa nemendur, sem vissulega felur í sér aukinn kostnað, en á sama tíma blasir við þeim hagræðingarkrafa. Hvernig á hagræðingin að ganga upp, virðulegi forseti, þegar stór hluti skólanna er þegar í hallarekstri og tekst sífellt á við fleiri áskoranir, eins og ég hef komið réttilega inn á í tengslum við starfsbrautir og sérnámsbrautir? Verður tekið tillit til framhaldsskóla sem eru að innrita þessa nemendur og eru að takast á við þau verkefni sem blasa við í kerfinu eða á hreinlega að hagræða um alla þessa 4 milljarða á þessum árum þegar við sjáum þessar áskoranir sem klárlega blasa við í skólakerfinu?