157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:28]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sitt síðara góða innlegg í umræðunni. En mig langar að nefna námsgögnin. Við skulum bara viðurkenna staðreyndir. Hér erum við og höfum verið með allt niðrum okkur þegar kemur að útgáfu námsgagna. Spurningin var sú: Eigum við að fara að vera með gjaldfrjáls námsgögn, sem eru nánast að verða barn síns tíma þegar það hefur ekki einu sinni verið gefin út ný stærðfræðibók síðustu 20 árin? Við skulum átta okkur á því að það verður að endurskoða, við erum að vinna að því að endurskoða námsgögnin. Við erum að fara að endurskoða bara allt heila systemið eins og við þurfum að gera. Ég vil nefna það að framlög til framhaldsskóla aukast frá gildandi fjármálaáætlun um 1,3 milljarða kr. á árinu 2027, um 1,1 milljarð kr. á árinu 2028 og um 400 millj. kr. árið 2029. Í haust mun mæta óvenju mikill fjöldi nemenda sem vill koma inn í skólana okkar. Ég átti fund í morgun með fulltrúum Samtaka iðnaðarins sem hafa miklar áhyggjur af þessari stöðu sem við munum vinna úr. Börnin okkar og ungmennin okkar munu fá innritun í skólana. Það er aðhaldskrafa á okkur öll. Það er aðhaldskrafa á ríkið, það er aðhaldskrafa á ráðuneytin hvert og eitt fyrir sig. Það er aðhaldskrafa á okkur öll. Það er náttúrlega hvergi nánast í heiminum sem er greitt meira með hverjum nemanda í krónutölum séð en hér á Íslandi. Þannig að spurningin er hvort við getum fengið meira fyrir aurinn og hvort við getum einhvern veginn hagrætt og gert betur. Hvers vegna er einn skóli rekinn betur en annar? Þetta er bara verkefni, þetta eru bara áskoranir og við þurfum bara að takast á við þær. Ég trúi því að það muni verða farsælt samstarf hjá mér við framhaldsskólana.