157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:35]
Horfa

Rósa Guðbjartsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er bara verið að rýna annars vegar í tölur í framkvæmdaáætlun sem voru lagðar fram fyrir mánuði og hins vegar þær tölur sem eru í málaflokknum á málefnasviði 25 sem þetta fellur undir. Þarna skeikar 16 milljörðum kr. og mér heyrist hæstv. ráðherra taka því nú bara svona frekar létt, að þessu verði bara reddað. En það hefði verið miðað við alvarleika máls og hve margir eru eldra fólk og að fjölskyldur þeirra eru virkilega áhyggjufullar yfir stöðu mála, þá væri betra að hafa þetta algerlega skýrt í fjármálaáætluninni sem um er að ræða. Því spyr ég hæstv. ráðherra hvort það sé tilefni til að skoða þetta aðeins nánar: Hvort er rétt; tölurnar í framkvæmdaáætluninni eða í þeirri fjármálaáætlun sem við erum að ræða hérna? Við vitum að það eru núna um 700 manns á biðlista eftir hjúkrunarrými. Það verður veldisvöxtur í þörfinni fyrir slík rými á komandi árum og það þarf að reisa og taka í notkun helst a.m.k. tvö hjúkrunarrými á ári hverju núna á næstunni til að bregðast við þessum málum. Það er alltaf verið að tala um að þetta séu vandamál. Þetta eru bara viðfangsefni sem þarf þó sannarlega að taka föstum tökum og við þurfum, hér á hinu háa Alþingi, að átta okkur á því hvor áætlunin; framkvæmdaáætlun eða fjármálaáætlun, er með réttar tölur í þessum efnum.