157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:37]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara innlegg sitt hér. Staðreyndin er sú að í fjármálaáætlun þá erum við meira að fara inn á málefnaflokka, síður inn á málefnasvið. Það er því erfitt að greina á milli þarna, hvað er leiga í sambandi við þessa samninga og hvað er í rekstur; ég held að þetta sé kannski ekki eitthvað sem ástæða er til að hengja sig eitthvað sérstaklega fast á. En að vera komin hér með 1.507 hjúkrunarrými á teikniborðið sem búið er að skrifa undir og ýmist farið að taka skóflustungur fyrir eða annað slíkt; að hafa verið að opna hér 100 rými í Urðarhvarfi bara fyrir nokkrum dögum; að vera að sjá útskriftarvanda Landspítala vera að leysast; að eiga að fá að upplifa það innan skamms að finna árangurinn af því hvað það hefur mikil og stór áhrif út í samfélagið okkar að geta leyst þann vanda sem hefur verið uppsafnaður á Landspítalanum sem mun þar af leiðandi smita jákvæðni út í samfélagið okkar — það er sú saga sem ég er stolt af því að tala um og stolt af því að segja. Fjármögnunin er til staðar í fjármálaáætlun. Eins og ég segi þá er munur á. Það er greint niður á málefnaflokka en síður niður á ákveðin svið þannig að það er erfiðara að greina á milli hvaða krónur og aurar fara í rekstur og annars sem fer í leigu.