fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanninum fyrir sitt síðara innlegg í þessa góðu umræðu. Hvað mér finnst um kynjafræði í skólum, hv. þingmaður? Jú, mér finnst t.d. einsýnt að í framhaldsskólum eigi að vera val. En mér finnst líka að það þurfi að fræða börnin okkar. Við erum að viðurkenna að það eru ekki allir eins, við erum ólík og höfum ólíkar langanir, þrár og við upplifum okkur ólíkt. Það er ástæða til þess í samfélagi þar sem í rauninni var litið á fólk sem var hinsegin hornauga og jafnvel var það hornreka og það var komið illa fram við það fólk. Við erum ekki þar. Við viljum taka utan um alla og gefa öllum jöfn tækifæri. En ég segi líka eins og hv. þingmaður: Mér finnst algerlega sjálfsagt að hlutirnir séu þannig að nemendur eigi meira val um svona afmarkaða kennsluhætti. En þegar við erum að tala um fræðslu fyrir börnin okkar um það sem er hinsegin og það sem þau ekki þekkja þá finnst mér algjört grundvallaratriði að þau fái a.m.k. grunnfærni í því að þekkja og greina þar á milli. Hvað lýtur að þessum fánum sem hv. þingmanni er tíðrætt um, hvort við eigum að vera með regnbogafána eða íslenska fánann, það bara mega vera allir fánar. Nú er það bara á valdi, held ég, hvers og eins skólastjórnanda. Ég hef ekki hugsað mér að koma með löggjöf um að banna þessa fána, ef það er það sem hv. þingmaður er að fiska eftir. Bara alls ekki. Við sjáum það líka að á meðan í einum skóla eru margir fánar þá eru í öðrum skóla fáir fánar og jafnvel enginn. Þetta er bara eins og það er. Það er frelsi í samfélaginu okkar og það er gott, hv. þingmaður.