157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:47]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Markmið þessarar fjármálaáætlunar er að tryggja stöðugleika í opinberum fjárlögum, draga úr afkomuhalla og stöðva hækkun skulda. Stefnt er að hallalausum fjárlögum árið 2027 í fyrsta sinn í langan tíma. Í næstum áratug hefur framtíðin verið tekin að láni og nú er ætlunin að hætta því.

Forseti. Dómsmálaráðuneytið ber ábyrgð á þremur málefnasviðum sem fjallað er um í fjármálaáætlun. Það eru almanna- og réttaröryggi, réttindi einstaklinga og dómstólar. Hérna undir eru algerar lykilstofnanir í okkar samfélagi. Það eru lögregla, almannavarnir, ákæruvald, Landhelgisgæsla, Útlendingastofnun, Fangelsismálastofnun, Persónuvernd og sýslumenn m.a. Í dómsmálaráðuneytinu eru líka jafnréttis- og mannréttindamál sem og Þjóðskrá Íslands. Á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar höfum við þegar ráðist í mikilvægar breytingar sem snerta málaflokka þessa ráðuneytis. Það eru aukin framlög til Landhelgisgæslunnar, aukin framlög til fangelsismála, tryggð fjármögnun brottfararstöðvar, breytingar í útlendingamálum hafa leitt til lækkunar á kostnaði í málaflokknum og við erum með viðbótarframlag fyrir nýtt öryggisfangelsi. Aukin framlög til Landhelgisgæslunnar voru 1,3 milljarðar, 1,2 milljarðar vegna fjölgunar lögreglumanna, 230 milljónir í styrkingu á rekstri Fangelsismálastofnunar og 500 milljónir til rekstrar brottfararstöðvar. Það er ástæða til að nefna það, herra forseti, að þetta voru varanleg viðbótarframlög til þessara mikilvægu verkefna. Þessi fjármögnun er því áfram í núverandi fjármálaáætlun og hér er ekki verið að draga úr eða skera niður. Ég leyfi mér að nefna líka 3,4 milljarða viðbótarfjárfestingarframlag vegna byggingar nýs öryggisfangelsis fyrir árin 2027 og 2028, til að hefja þessa uppbyggingu.

Ríkisstjórnin, og sá ráðherra sem hér stendur, er staðráðin í því að ætla að tryggja og efla öryggi og innviði og við erum byrjuð á þessu. En við þurfum auðvitað líka að vera skynsöm og við þurfum að vera ábyrg í meðferð fjármuna. Við ætlum okkur að búa til jarðveg þar sem við byggjum upp stöðugt hagkerfi þar sem lífskjör batna á grundvelli raunverulegrar verðmætasköpunar og þess vegna er mikilvægt að hagræða í ríkisrekstri.

Í dómsmálaráðuneytinu höfum við nú fengið samþykkta hér á Alþingi fyrstu sameiningu ríkisstofnana á kjörtímabilinu og ég þakka Alþingi samstarfið í þeim efnum. Þann 1. janúar 2027 mun nýtt embætti sýslumanns taka til starfa. Með þessari aðgerð fækkuðum við ríkisstofnunum um 5%. Fyrir þessu þingi liggur frumvarp mitt um afnám jafnlaunavottunar. Mikið hagræðingarmál. Ég bind vonir við að Alþingi samþykki það fyrir lok þessa þings. Við stefnum líka að því að fækka ríkisstofnunum. Við stefnum að frekari einföldun, m.a. með því að fækka héraðsdómstólum sem í dag eru átta talsins; fækka og stækka. Með því að fækka eflum við starfsemi þeirra og jöfnum álag. Það þýðir ekki að starfsstöðvum fækki heldur að stofnunum fækki. Jafnframt er hafin vinna við að greina skipulag lögregluembætta á landinu. Auknar áskoranir í löggæslu kalla á þessa greiningu og markmiðið er að meta hvort og þá hvernig breytingar á skipulagi geti eflt löggæslu til framtíðar. Verði það niðurstaðan mun ég fylgja því eftir.

Forseti. Miklar framkvæmdir eru fyrirhugaðar vegna byggingar nýs öryggisfangelsis á Suðurlandi. Þar mun rísa fangelsi með 128 plássum. Verkefninu er skipt í tvo áfanga og bundnar eru vonir við að jarðvegsvinna hefjist í lok sumars. Það eru í farvatninu framkvæmdir á Sogni sem munu bæta við 13 fangelsisplássum. Ég hvet þingmenn til að kynna sér frumvarp mitt um fullnustu refsinga gaumgæfilega. Tölfræðin þar er ískyggileg en frumvarpið býður upp á lausn fyrir fangelsi. Við ætlum okkur líka að reisa brottfararstöð.

Í lokin ætla ég að segja þetta: Við erum byrjuð á því verkefni að samræma reglur um útlendinga hérlendis við reglur nágrannaríkja. Frumvarp um afturköllun verndar er orðið að lögum og frumvarp sem lagði niður svokallaða 18 mánaða reglu sömuleiðis. Við erum með fleiri frumvörp í deiglunni, frumvarp um sameiningu atvinnu- og dvalarleyfis. Hér á Alþingi hefur nú verið dreift frumvarpi um verndarsamkomulag ESB og um fjöldaflótta. Af þessu skapast fjárhagslegt hagræði. Þetta eru helstu atriðin sem hægt er að fara yfir í fimm mínútna ræðu en ég hlakka til umræðunnar við þingmenn hér í þingsal.