157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[16:53]
Horfa

Sigurður Örn Hilmarsson (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir yfirferð sína hvað varðar málaflokk ráðuneytisins í fjármálaáætlun. Tíminn er býsna knappur og af mörgu er að taka. En ég tel í upphafi mikilvægt að geta þess, sem ég tel að við ráðherrann séum sammála um, að það er frumskylda ríkisins að tryggja öryggi þegnanna, tryggja öryggi í landinu og til þess að svo megi verða þarf auðvitað að tryggja öfluga löggæslu og réttarkerfi og að sjálfsögðu fullnustumálin. Þá er ég að tala um fangelsin.

Ég vil byrja á að beina sjónum mínum að því að mér skilst að núna um síðastliðin áramót hafi 357 einstaklingar beðið eftir afplánun í fangelsi. Þetta er sá bráðavandi sem við stöndum frammi fyrir, höfum reyndar gert allt of lengi. Dómar hafa hreinlega verið að fyrnast í alvarlegum afbrotum. Hér er verið að efla það og einn liður í því er auðvitað þetta nýja fangelsi að Stóra-Hrauni. Mér skilst að þar sé gert ráð fyrir 100, jafnvel 128, plássum en þá erum við ekki búin að ná að klára biðlistann. Ég vil því byrja á að spyrja ráðherrann aðeins út í þetta. Það kemur svo sem ekkert almennilega fram í fjármálaáætluninni, í þeim upplýsingum sem ég náði að afla mér: Hver er áætlaður heildarkostnaður við uppbygginguna að Stóra-Hrauni og er hans getið þarna í fjármálaáætluninni? Er gert ráð fyrir honum öllum? Vegna þess að ég fæ tölurnar ekki alveg til að ganga upp. Svo er seinni liðurinn (Forseti hringir.) þessi: Hvað ætlum við að gera við afganginn, sem eru þá 230–240 einstaklingar sem komast ekki inn í nýja fangelsið þegar það verður loksins tekið í gagnið?