fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er alveg rétt sem hann segir um Stóra-Hraun. Þar er gert ráð fyrir því að þetta öryggisfangelsi muni geyma 128 pláss og verði byggt í tveimur áföngum. Fyrri hluti áfangans er fjármagnaður í þessari fjármálaáætlun. Það sem við erum að gera hér er að fjölga fangelsisplássum og þá blasir við að á meðan við erum í þessum fasa verður áfram unnið með það að hluti plássa á Litla-Hrauni verði í nýtingu. En ég horfi líka á þetta sem öryggismál því að þegar við erum að tala um skipulagða brotastarfsemi þá blasir við að það er veigamikið atriði að hægt sé að brjóta upp fangahópa innan veggja fangelsisins.
Hv. þingmaður spyr líka hvaða aðgerðir aðrar, því að vitaskuld er það ekki svo að við séum hér á Íslandi að fara að byggja fangelsi sem tekur 700 eða 800 manns til að hreinsa listann upp á einu bretti. Við ætlum að nálgast þetta verkefni úr ólíkum áttum. Bygging nýs fangelsis er stóra svarið og svar til framtíðar en það er í árum talið. Þess vegna er ég núna með þetta frumvarp, sem mér skilst að hafi verið til umræðu í allsherjar- og menntamálanefnd bara síðast í gær, um að við hverfum frá því að veita erlendum föngum með engin eða lítil tengsl við landið reynslulausn því að þeirra bíður brottvísun. Þeirra bíður brottvísun strax og af þeirri ástæðu þarf ekki að fara með þennan hóp manna inn á Vernd í reynslulausn og þar gætu nokkrir tugir manna farið úr fangelsinu og þannig verður til pláss.
Ég verð því að segja hið augljósa: Ég heyri að brottfararstöð er umdeild í opinberri umræðu. Þetta er lykilsvar um aðstöðumál í fangelsunum. Inni í fangelsunum í dag sitja á hverjum tíma allt að því tugir manna sem hafa ekki verið dæmdir fyrir neitt en eru sannarlega ósamvinnufúsir að fara af landi brott. Með brottfararstöð (Forseti hringir.) er hægt að vista þá þar og þar með taka menn inn sem raunverulega eiga að vera í fangelsi.