fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir umfjöllunina um málefnasviðið sem tekur til ýmissa þátta. Ég vildi kannski byrja á því í dag, fyrst manni gefst tækifæri til þess, að ræða innflytjendamálin aðeins í stóru samhengi. Ég átti nokkuð forvitnileg samskipti við hæstv. atvinnuvegaráðherra inni á þingi, gott ef það var ekki bara á mánudaginn, um nýja atvinnustefnu stjórnvalda sem ég taldi frá upphafi að ætti að móta ákveðna umgjörð utan um það hér á Íslandi hvernig hagkerfið gæti vaxið í framhaldinu, helst án þess að hin óseðjandi þörf fyrir innflutt vinnuafl væri áfram ráðandi drifkraftur í þróun hagkerfisins. Það var það sem mér hafði þótt hæstv. forsætisráðherra ganga út frá í mótun þessarar atvinnustefnu, að hún tengdist sannarlega innflytjendamálum, að sjálfsögðu; að eftir því sem framleiðni hækkaði í störfunum og við værum að gera meira fyrir minna þá minnkaði þörfin á innfluttu vinnuafli. Það væri m.a. og öðrum þræði, auðvitað ekki alfarið en alla vega að verulegum hluta til, hugsunin með því að móta sérstaka atvinnustefnu til að stýra því hvernig við þróum okkur betur í sjálfbæra átt á þessu sviði. Þetta var minn skilningur. Síðan kemur hæstv. atvinnuvegaráðherra og þvertekur fyrir að ný atvinnustefna tengist á nokkurn hátt innflytjendamálum, þegar mig rámar í að hæstv. dómsmálaráðherra hafi talað í þá átt að þetta væri nú tengt, a.m.k. veit ég til þess og get fullyrt að hæstv. forsætisráðherra hefur gert það. Þetta kom mér mjög spánskt fyrir sjónir og hljómaði undarlega. Ég veit ekki hvað vakti fyrir hæstv. ráðherra þegar hann lýsti því svona, hvort það væri skilningsleysi á tilgangi eigin stefnu eða hvort hæstv. ráðherra væri hreinlega ósammála stefnunni. Það er þá ekki gott fyrir þessa stefnu ef hæstv. atvinnuvegaráðherra, sem ber mikla ábyrgð á málefnasviðinu, er ósammála markmiðunum um að draga úr þörfinni fyrir innflutt vinnuafl í íslensku hagkerfi.
Nú spyr ég hæstv. dómsmálaráðherra hvort hann aðhyllist slíkt markmið og telji að atvinnustefnan þjóni þessum markmiðum.