157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:05]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni Snorra Mássyni fyrir spurninguna. Það er eins þegar við erum að tala um útlendingamál og jafnan er um stóra málaflokka að þeir hríslast niður í ólík ráðuneyti. Þjónusta t.d. við umsækjendur um alþjóðlega vernd er í félagsmálaráðuneytinu. Regluverkið og lagabálkurinn eru í dómsmálaráðuneytinu. Auðvitað er tenging á milli atvinnustefnu og útlendingamála, atvinnustefnu og húsnæðismarkaðar, atvinnustefnu og menntamála og skólamála. Stóru skrefin sem ég tek til mín út úr atvinnustefnunni eru að við erum að boða einfaldari, skilvirkari og hraðari málsmeðferð. Það sem ég er ánægð með í fjármálaáætlun hvað varðar útlendingamál eða kannski innflytjendamál er það sem mér finnst vera skýrari pólitísk skilaboð um áherslu á íslenskukennslu. Það finnst mér skipta mjög miklu máli.

Hvað varðar fjármálaáætlun úr dómsmálaráðuneytinu erum við að líta til þess hver kostnaður er við þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Hann hefur dregist saman á milli ára. Við erum að horfa á þær breytingar sem við erum að gera á verndarkerfinu. Við erum að horfa á úrbætur í brottvísunum. Við erum að horfa á frumvarp um dvalarleyfiskaflann og ég er að hefja vinnu við það hvernig við veitum ríkisborgararétt á Íslandi. Þar erum við á skjön við önnur Norðurlönd og það þarf miklu skemmri tíma til að fá ríkisborgararétt á Íslandi en annars staðar. En hvort það sé tenging á milli atvinnustefnu og innflytjendamála, já, mér finnst ég geta séð hana. Þegar ég horfi á atvinnustefnuna og síðan þá málaflokka sem heyra undir mig þá er auðvitað skörun í öllu, en það á kannski við um eiginlega öll málefnasvið sem við ræðum hér á þingi að við erum með einhverjum hætti alltaf að ræða lífskjör og lífsgæði og undir það fellur auðvitað atvinna.