fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Kannski nokkur orð um ríkisborgararéttinn af því að hv. þingmaður nefnir hann sérstaklega. Ég hef nefnilega verið töluvert hugsi yfir þessu. Ég er í þéttu sambandi við ráðherra útlendingamála á Norðurlöndunum. Sums staðar er það þannig að það eru sjálfstæð ráðuneyti utan um þennan málaflokk. Tvennt finnst mér þar allt að því öskra á mann. Við stöndum okkur og höfum staðið okkur illa hvað varðar íslenskukennslu fyrir fólk sem hingað kemur og þegar við berum okkur saman við hin Norðurlöndin erum við á botninum hvað þetta varðar. Þannig að þegar við stöndum hér í þessum þingsal og býsnumst yfir því að fólki gangi ekki nægilega vel og það tileinki sér ekki íslenska tungu þá verðum við líka að vera tilbúin í samtal um það að við ætlum að gera betur. Ég er þeirrar skoðunar að þar sé skylda á stjórnvöldum að gera betur og það eru skýr skilaboð og stef um það í fjármálaáætlun. Það er forsenda þess að aðlagast samfélagi og taka þátt í því að tala tungumálið. Hér eru jafnvel dæmi um að fólk búi til lengri tíma á landinu sem ekki talar íslensku, talar heldur ekki ensku. Hverjir eru möguleikar þínir á íslenskum vinnumarkaði þegar þetta er staðan?
Hv. þingmaður nefnir þátt þingsins í því að veita ríkisborgararétt. Ég viðurkenni að það truflar mig ekki að þingið hafi þetta verkfæri. Ég er hins vegar hugsi yfir því hvernig verklagið er og að eitthvað sem í upphafi var frávik þegar aðstæður voru sérstakar og aðkallandi og nöfnin voru uppi á yfirborðinu er núna orðið að bara ofboðslega stórri og mikilli framkvæmd, jafnvel þannig að hér hafa orðið slys. Ég er að skoða í ráðuneytinu hjá mér hver skilyrði ríkisborgararéttar eru. Hvað erum við að horfa á um búsetutíma í því samhengi? Hvaða viðmið viljum við horfa á um þátttöku í samfélaginu áður en ríkisborgararétturinn kemur og hvað erum við að tala um varðandi tungumál? Hér er stundum verið að tala um það núna (Forseti hringir.) hvort við getum afturkallað ríkisborgararétt og þetta heyri ég á Norðurlöndunum líka. Ég er þeirrar skoðunar að það eigi ekki að vera auðvelt mál að svipta menn ríkisborgararétti. Það á heldur ekki að vera auðsótt mál að fá ríkisborgararétt. Þetta eru heilög réttindi og þau þurfa að þýða eitthvað.