157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:12]
Horfa

Arna Lára Jónsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir fína ræðu og ég vil líka hrósa henni fyrir áherslu sem kemur fram í fjármálaáætlun og sem er gerð til að tryggja öryggi kvenna. Það er sérstaklega dregið fram að fyrirhugaðar séu breytingar á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili sem ætlað er að styrkja réttarstöðu þolenda, sérstaklega í málum er varða heimilisofbeldi og umsáturseinelti. Mér finnst þetta alveg gríðarlega jákvætt og mikilvægt og ég vil fá að hrósa ráðherra sérstaklega fyrir það.

Mig langaði samt í fyrri ræðu að vera á svipuðum nótum og hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson og ráðherrann sjálfur og ræða aðeins öryggisfangelsið Stóra-Hraun og þær miklu framkvæmdir sem þar eru fyrirhugaðar. Hún hefur væntanlega tekið eftir þeim fréttum sem bárust fyrir tveim dögum en það var ályktun frá félagi fangavarða og sem Fangelsismálastofnun tók undir þar sem var verið að álykta um gríðarlega alvarlega aðstöðu, alvarlegan húsnæðisskort og bágborinn aðbúnað í fangelsunum. Það er auðvitað vegna gríðarlegrar innviðaskuldar í málaflokknum. Það er búið að standa hér til að byggja fangelsi í mörg, mörg ár. Lítið hefur gengið en það sem ég tek eftir í fjármálaáætluninni er að þar er gert ráð fyrir 11,7 milljörðum í byggingu nýs fangelsis. Þegar fangelsið kom fyrst inn á hugmyndastigi þá voru það 7 milljarðar. Svo sá ég í gögnum frá Framkvæmdasýslu ríkisins að fangelsið var komið í 32 milljarða. Ég velti því fyrir mér hvort fram hafi farið ný þarfagreining eða hvort ráðherrann telji að 11,7 milljarðarnir, sem eru svo sem í fyrsta áfanga, dugi (Forseti hringir.) eða hvort búið sé að endurskoða þarfagreininguna.