fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég hef líka lesið fréttir frá formanni Afstöðu, félags fyrrverandi fanga, og þar eru hugmyndir um að við séum að byggja allt of dýrt fangelsi, að við séum að gera allt of miklar kröfur í öryggisfangelsinu. Það var líka það sem ég var að leitast eftir, hvort við værum kannski líka að fara að byggja annars konar rými. Það er oft þannig að þegar við ætlum að fara að byggja eitthvað þá setjum við okkar bestu verkfræðinga af stað og það koma alltaf rosalega dýrar hugmyndir og kannski ekki endilega það sem við erum að biðja um. Það var kannski einhver slík hugleiðing sem leitaði á mig.
Mig langaði líka aðeins að ræða við hæstv. ráðherra. Við samþykktum hér fyrir áramótin frumvarp um sameiningu sýslumannsembættanna og það er dregið fram í fjármálaáætluninni að vel hafi tekist til. Mig langaði kannski aðeins að spyrja ráðherrann út í hvernig hefur gengið með þessa sameiningu og líka hvort það standi til að sameina fleiri stofnanir. Ráðherra nefndi það svo sem í ræðu sinni áðan og þá spyr maður hvort það standi til að sameina lögregluembættin. En í þessu sambandi vil ég líka nefna að það kemur skýrt fram í fjármálaáætluninni að auðvitað eigi ekki að segja ríkisstarfsmönnum upp, hvorki þegar kemur að heilbrigðisþjónustu né í velferðarmálum og alls ekki lögreglumönnum. Slík sameining er auðvitað ekki til þess að fækka lögreglumönnum en hún gæti orðið til þess að auka þjónustu og auka samvinnu milli embætta.
Mig langaði að spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé á teikniborðinu að sameina lögregluembættin.