157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:24]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir góðar spurningar, lykilspurningar um lykilmálaflokka. Ég gef mér að hann sé að vísa í orð í ræðu minni þar sem ég fór yfir það að við jukum þá framlög til reksturs Landhelgisgæslunnar um 1,3 milljarða, að við jukum þá heildarframlög til lögreglu í landinu um 1,2 milljarða, að við settum þá 230 nýjar milljónir í styrkingu á rekstri Fangelsismálastofnunar og að við settum 500 milljónir til að reka brottfararstöð. Hv. þingmaður spyr: Er fjármagn komið inn fyrir brottfararstöð? 500 milljónir eru komnar í þetta verkefni. Ég nefndi líka að allt væru þetta varanleg viðbótarframlög til þessara mikilvægu verkefna þannig að þegar við sögðum í blábyrjun, að við ætluðum að fjölga lögreglumönnum um 50 og mér skilst að í dag sé búið að ráða 47, þá lagði ég lykiláherslu á það. Ég vil frekar fara í það að ráða 50 menn sem eru komnir til að vera, ekki átak um að setja átta nýja menn í samfélagslöggæslu til tveggja ára sem rennur síðan út. Hefði ég verið til í fleiri nýja lögreglumenn? Já. Tel ég að það sé þörf á fleiri lögreglumönnum í landinu? Hiklaust. Ég er hins vegar trú því markmiði ríkisstjórnarinnar og auðvitað ekki síst fjármálaráðherra að við ætlum að ná fram hallalausum fjárlögum. Þess vegna er þetta gert af ábyrgð en sannarlega vildi ég geta gert meira. Framlög í gegnum almannavarnir, mér heyrðist þingmaðurinn nefna þau, fóru í gegnum ríkislögreglustjóra á sínum tíma, í varnargarðana ekki síst, en við erum með í þessari fjármálaáætlun 3,4 milljarða til viðbótar í fjárfestingarframlag vegna öryggisfangelsis, ofan á þá fjármuni sem voru þar fyrir. Ég held að í heildarsamhengi hlutanna þá sé ríkisstjórnin (Forseti hringir.) á sínum fyrstu metrum að bæta í en sannarlega væri ég til í meira.