fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegi forseti. Varðandi fangelsismálin og öryggisfangelsi þá er það svo að fyrsti áfangi er fjármagnaður í þessari fjármálaáætlun. Ég sé ekki fyrir mér að þetta fangelsi rísi neitt hraðar en það. Það er verið að leggja af stað og leggja upp með fyrsta áfanga. Hann er fjármagnaður. Hv. þingmaður nefnir löggæsluna. Ég er þeirrar skoðunar og hef verið lengi að hún hafi verið vanfjármögnuð um langa hríð en eitt sem kallar á mann þar er staðan í húsnæðismálum því að hún er erfið og hún er vond hringinn í kringum landið. Þar get ég upplýst að í dómsmálaráðuneytinu er núna í gangi vinna við að kortleggja það. Við vitum að staðan er t.d. sérstaklega erfið á Vestfjörðum. Við vitum að staðan er þung og erfið á Seyðisfirði en húsnæðismál lögreglu eru gegnumgangandi þannig að ég myndi glöð vilja sjá breytingar þar. Lækkun á sviði 10 sem hv. þingmaður nefnir, aðgerðir í útlendingamálum — sannarlega aðgerðir sem síðasta ríkisstjórn stóð að og þær eru núna að raungerast í lægri kostnaði í málaflokknum. Það hefur áhrif á kostnaðarliði inni í félagsmálaráðuneytinu en við vitum ósköp vel að þegar við gerum breytingar á regluverki útlendingalaga, því að þær hafa allar verið í eina áttina, þá keyrast þessar tölur niður. Hér sjáum við lækkun á tveimur árum upp á 4 milljarða. Þetta sýnir okkur að kerfisbreytingar geta leitt til hagræðis. Við höfum fækkað ríkisstofnunum um 5% með sameiningu sýslumanna og í því reikningsdæmi blasir við að þegar vinnan er komin í höfn, nýtt skipulag hefur tekið gildi, þá fæðast þar um 200–250 millj. kr. á ári hverju í hagræðingu.
Tækifærin eru alls staðar. Ég held að viljinn til að finna þau þurfi að vera fyrir hendi. Við erum algerlega skýr með það að við ætlum ekki að fara í framlínustarfsemi eða -starfsmenn. (Forseti hringir.) En það eru auðvitað fleiri á þessu málefnasviði starfandi heldur en bara lögreglumenn.