fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Herra forseti. Það er af mörgu að taka hér og við fáum væntanlega mjög góða og efnislega umræðu í fjárlaganefnd þar sem sá sem hér stendur situr. En ég vil fara inn á mál sem hafa verið mér hugleikin og koma kannski ekki ráðherranum á óvart, þ.e. það sem snýr að ríkislögreglustjóra, sérsveitinni og öðru varðandi umræðu sem við erum að taka núna um öryggis- og varnarmálin, 1,5%, og hvernig eigi að fara með þau mál. Utanríkisráðherra minnir mig að hafi komið inn á það í umræðunni í gær, að þann 15. maí á að skila inn skýrslu sem snýr að þessu, hvaða verkefni Ísland hefur hugsað sér að setja inn í 1,5% og vinna út frá. Það kemur náttúrlega fram í framtíðarsýn og meginmarkmiðum í kafla 9 sem er undir málefnasviði ráðherra sem snýr að ríkislögreglustjóra, viðnámsþrótti og áfallaþoli. Það er af nógu að taka þar. Ég vil leggja sérstaklega áherslu á sérsveitina, ef ráðherra gæti aðeins upplýst hvaða hugmyndir eru þar uppi á næstu misserum í þessari fjármálaáætlun er snúa að sérsveitinni og uppbyggingu sveitarinnar. Sá sem hér stendur hefur lengi talað fyrir uppbyggingu þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar á Akureyrarflugvelli, að það væri gott og heilbrigt skref inn í umræðu um leit og björgun í Norður-Atlantshafi sem klárlega er hluti af borgaralegri þjónustu sem við gætum tekið að okkur, Íslendingar, í sambandi við varnar- og öryggismál. Það er eitt eðlilegasta skrefið í þá átt. Byrjum á þessu, síðan er af nógu að taka í seinna andsvari, ef ráðherra gæti rétt hlaupið yfir þessa punkta og svarað þeim.