157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[17:38]
Horfa

dómsmálaráðherra (Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir) (V):

Forseti. Já, þetta er góð spurning hjá hv. þingmanni og varðar fjarskiptaöryggi. Það er, eins og þingmaðurinn þekkir, forsenda þess að almannavarnir geti sinnt hlutverki sínu við leit og björgun að fjarskiptakerfið sé gott. Eins og þingmaðurinn nefnir er TETRA-kerfið að úreldast og þörfin fyrir nýtt kerfi blasir við. Það er stutt síðan ég ákvað að setja saman starfshóp einmitt til að kortleggja og greina næstu kynslóð fjarskiptakerfis fyrir þá neyðarþjónustu eins og þingmaðurinn er að tala um. Við erum að setja þann hóp saman, við erum ekki lengra komin en það, en sá hópur myndi síðan hafa samráð við helstu sérfræðinga og hagaðila. Ég er einlæglega sammála því sem þingmaðurinn nefnir að þetta er brýnt verkefni. Þó að við getum kannski ekki gengið svo langt að segja að kerfið sé úrelt (NTF: Það er að úreldast. )— er að úreldast er lýsingin á því hver staðan er í þeim efnum. En þetta er eitt fjölmargra verkefna sem varðar viðbragðsgetu okkar.

Ég held reyndar, og það er pólitísk skoðun mín, að útgjöld til mála sem varða varnir og öryggi séu oft dálítið fjarlæg almenningi allt þar til við förum að útskýra hvað í þessu felst. Fjarskiptakerfi, vill almenningur í landinu að þetta sé í lagi? Vitaskuld. Þegar við tölum um útgjöld, tækjabúnað, mannauðinn hjá Landhelgisgæslu, CERT-IS, ríkislögreglustjóra: Eru þetta lykilþættir í öryggi okkar og vörnum? Vitaskuld. Þannig að með því að færa samtalið aðeins nær okkur, vera dugleg við að taka þátt í samtölum, eins og hv. þingmaður sannarlega er, þá held ég líka að við fáum þjóðina sterkar með okkur í lið um að auka fjárfestingu í þessum mikilvægu innviðum.