fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Já, það er samt þannig að þessi fjármálaáætlun gerir ekki ráð fyrir öðru en að útgjöld til varnartengdra verkefna liggi öll hjá utanríkisráðuneytinu, a.m.k. sú aukning sem er. En það er alveg rétt að það eru auðvitað nú þegar fullt af útgjöldum til varnartengdra verkefna sem teljast til þessara NATO-verkefna og það er mjög mikilvægt að ráðherrar geti svarað því, svarað þinginu, hvaða útgjöld það eru nákvæmlega þannig að þingið sé upplýst um það á hverjum tíma hvaða útgjöld er verið að setja inn í NATO-bókhaldið. Mér að vitandi hefur aldrei verið upplýst um það. Mér finnst þingið koma ítrekað að tómum kofanum hjá ráðherrum þegar spurt er um þessa þætti. Það er eins og menn fari með þetta eins og mannsmorð, að menn vilji ekki nefna þetta. Ég held að menn þurfi ekkert að skammast sín fyrir þessi framlög og að þau séu talin fram í samhengi við varnartengd verkefni og í samræmi við kröfur NATO.
Mig langar hins vegar að spyrja hæstv. ráðherra örlítið um dómstólapartinn. Ég man eftir því að í upphafi ríkisstjórnarsamstarfsins var kallað eftir því af almenningi, sem ríkisstjórnin hafði kallað til samráðs, að hæstaréttardómurum yrði fækkað t.d., það var ein tillaga. Það bólar ekkert á slíkri tillögu en annað sem rifjaðist upp fyrir mér þegar ég sá auglýsingu eftir hæstaréttardómara núna á dögunum, ein staða embættis hæstaréttardómara losnar núna í haust — mér fannst vanta í þeirri auglýsingu að mæta þeim plagsið sem hefur tíðkast hér frá árinu 1991, að hæstaréttardómarar séu að eigin kröfu leystir undan skyldum sínum 65 ára en haldi launum eftir þann tíma. Núna síðustu ár hefur það bara verið til sjötugs, áður var það ævilangt. Það þyrfti að snúa af þessari venju með því að tilgreina í auglýsingu um nýja hæstaréttardómara að þessi misnotkun á stjórnarskrárákvæði sem að þessu lýtur eigi ekki við um þá níu hæstaréttardómara sem kunna að vera skipaðir í Hæstarétt eftirleiðis.
Hver er afstaða hæstv. dómsmálaráðherra til þessarar venju sem hefur myndast (Forseti hringir.) frá árinu 1991, um lausn hæstaréttardómara frá störfum 65 ára?