fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Í lokin aðeins um öryggis- og varnarmálin. Hér var afgreidd stefna, þingsályktun um öryggis- og varnarmál, sem allir flokkar gátu sameinast um og það fannst mér gríðarlega mikilvægt. Þingið verður að vera sameinað í þessum málum. Mér finnst mjög sterk og skýr leiðsögn í því nefndaráliti sem fylgdi. Hvað er verið að segja þar? Þar er sagt mjög skýrt: Alþingi Íslendinga vill að það sé litið jöfnum höndum til borgaralegra innviða og hernaðarlegra. Alþingi Íslendinga er líka mjög skýrt í þeirri afstöðu sinni að við erum ekki sem stendur að horfa á breytingar á stofnanaskipulagi. Ég vil nefna, af því að mér láðist að nefna það áðan, ég nefndi löggæsluáætlun en það er líka landhelgisáætlun í smíðum í dómsmálaráðuneytinu. Við erum sannarlega að kortleggja þessi mál. Það er auðvitað töluvert viðbótarframlag sem fer inn í utanríkisráðuneytið núna vegna þess að þar er varnarmálahlutinn, miklar viðbótarheimildir til utanríkisráðuneytisins sem gætu samt í samhengi hlutanna nýst inn í Landhelgisgæsluna enda er hún partur af rekstrinum þar. Þetta er eitt af því sem er til skoðunar þar. Ég nefni þetta af því að það hefur verið áhugi í þinginu á því, og ég deili þeim áhuga, að fjölga þyrlunum.
Varðandi dómstólana þá þarf að breyta lögum til að fækka dómurum í Hæstarétti. Það er fyrsti punktur. Hagræðingarhópurinn nefndi þetta en það þarf lagabreytingu. Síðan er það svo að það er í stjórnarskrá ákvæði um að það megi veita þeim dómara sem er orðinn fullra 65 ára lausn frá embætti, en hæstaréttardómarar skulu eigi missa neins í af launum sínum. Þetta á ekki við um landsréttardómara, þetta á ekki við um héraðsdómara. Það má sannarlega hafa skoðun á því núna, með tilliti til lífaldurs fólks, að menn sitji á fullum launum frá 65 ára aldri. En þetta er nú staðan. Ég sé ekki fyrir mér að það hefði mátt breyta þessari framkvæmd sem er, ofan á það að vera þarna í stjórnarskrá, (Gripið fram í.) orðin að venju, með setningu í auglýsingu. (Gripið fram í.) Fjárveitingar til Hæstaréttar voru rétt yfir 600 millj. kr. en fjárveitingar til dómstólanna í heild sinni um 4,6. Þetta eru um 600 milljónir af þessum heildarupphæðum. En mér finnst þetta sjónarmið um aldur hæstaréttardómara og þau réttindi sem fylgja — ég ætla að leyfa mér að segja að mér finnast þau ekki sjálfsögð.