157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:08]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætar spurningar. Það er einmitt áhugavert, eins og ég var að benda á áðan í samtali við hv. þingmann og formann Sjálfstæðisflokksins, að það er mjög skýrt. Ég er með þessi gröf hérna fyrir framan mig úr minnisblaði til ríkisstjórnarinnar. Þetta er líka úr kynningu þar sem sjást tekjuráðstafanir núverandi áætlunar og fyrri áætlunar og hvernig við erum í rauninni ekki að fara ósvipaða leið. En við erum að breyta því innbyrðis hvar við sækjum tekjurnar. Það skiptir máli því að hér er talað um skattbyrði. Erum við að fara bara í það gjaldamegin? Erum við líka að tala um hluti eins og skattaívilnanir gagnvart ákveðnum atvinnugreinum? Við erum t.d. að leggja á bankaskatt, a.m.k. tímabundið, og sjáum hvernig það mun þróast með tíð og tíma. Já, það er alveg rétt að heildartekjur eru að fara niður á við sem hlutfall af vergri landsframleiðslu sem þýðir að út frá tekjuvexti kerfisins í heild og þar með launafólks er byrði þess að lækka. Auðvitað skiptir lykilmáli hvernig þessar tekjur eru sóttar. Þar er kannski áherslumunurinn á þessari ríkisstjórn og þeirri síðustu.

Varðandi afkomuna þá skiptir gríðarlega miklu máli — og það skyldi enginn gera lítið úr mikilvægi þess að við komumst réttum megin við núllið vegna þess að þrátt fyrir að þú værir í mínus 5 milljarða halla og færir síðan í plús 2 þá eru það samt 7 milljarðar sem ríkið sækir ekki til viðbótar á markað og í rauninni 2 milljarðar sem geta þá farið inn á skuldahliðina. Hver króna, og ég tala nú ekki um í milljörðum talið, skiptir máli í þessu samhengi. Það hlýtur að vera markmiðið til skemmri og lengri tíma að ná afkomunni réttum megin við núllið þannig að við séum ekki að safna meiri skuldum en áður. Það mun taka tíma að vinna eldri skuldastabba aðeins niður. En þetta eykur svigrúm okkar til að fara í önnur nauðsynleg útgjöld, t.d. á sviði innviðafjárfestinga. Þannig að hvert ár telur og skyldi enginn gera lítið úr því.