157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:10]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin. Það að greiða niður skuldir, maður þekkir það úr heimilisrekstrinum, er kannski ekki skemmtilegasta verkefnið. En það er mjög mikilvægt vegna þess að hver einasta króna sem fer í að borga vexti fer ekki í eitthvað annað á meðan. Ég minnist þess að á síðustu fjárlögum eða þarsíðustu fjárlögum hafi vaxtabyrðin verið yfir 100 milljarðar á ári. Nú er ég með eitt stykki samgönguáætlun í fanginu og það er mjög skemmtilegt og krefjandi verkefni þar sem flest sveitarfélög koma og segjast vilja meira og helst fyrr, en innviðaskuldin er gríðarleg. Mig minnir að Samtök iðnaðarins hafi komið með skýrslu í fyrra sem greindi frá því að innviðaskuldin hlypi á um 700 milljörðum kr. Það er verk að vinna og þá kemur líka inn ákveðinn freistnivandi stjórnmálanna, þegar við erum kjörin til fjögurra ára í senn, til að sýna hratt á spilin. Það sem mér skilst að hafi svolítið verið lenskan í gegnum tíðina er að taka af viðhaldsfé, taka af því sem skiptir máli, þ.e. að fylla í holurnar og tryggja að vegklæðningarnar séu í lagi og taka á einbreiðum brúm og öllu þessu. Það er tekið inn í einskiptisstórframkvæmdir eða annað vegna þess að þar er hægt að klippa á borða o.s.frv. Ég held að núna reyni svolítið á okkur að sýna að við getum tryggt viðhaldsfé. Þar kemur inn þessi innspýting sem er í fjármálaáætlun upp á 12 milljarða og fer úr 12 milljörðum upp í 17 og svo 20 en þyrfti helst að vera 23 til að ná utan um innviðaskuldina.

Ég held að við verðum bara að standa við þessi loforð og tryggja að þetta fari af stað. Ég finn að fólkið þarna úti er tortryggið gagnvart gjöldum og sköttum vegna þess að það trúir því ekki að þetta fari raunverulega í innviðafjárfestingar. En er það ekki svo að það standi svolítið upp á okkur að skila því raunverulega þarna inn á þessu kjörtímabili?