157. löggjafarþing — 94. fundur,  15. apr. 2026.

fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.

577. mál
[18:13]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Forseti. Ég þakka fyrir þessa spurningu og vangaveltur hjá hv. þingmanni og tek heils hugar undir mikilvægi þess að við komum afkomunni á réttan stað. Ég hef upplifað það í umræðunni að þetta skipti engu máli. Það eru algjör nýmæli í þessum sal að það skipti engu máli að reka ríkið ekki með halla. Viljum við betri afkomu? Já, auðvitað. En þetta mun taka sinn tíma. Við erum að ráðast t.d. í ákveðnar aðgerðir til millilangs tíma á sviði atvinnustefnu sem felast í því að ýta undir framleiðnivöxt, hagvöxt á mann hér á landi, vegna þess að auðvitað eru takmörk fyrir því hvernig ríkið getur beitt sé bara með útgjöldum. Það er það sem er svo áhugavert við þessa umræðu um fjármálaáætlun. Þar erum við bara að tala um tekjur og útgjöld og erum ekki alltaf að tala um kerfið í heild sinni. Ég vek athygli á því að á tímabili síðustu ríkisstjórna, 7–8 ára tímabili, var 0% hagvöxtur á mann, uppsafnað 0% hagvöxtur á mann. Það var vissulega hagvöxtur sem mældist þannig að peningar duttu inn í ríkissjóð. En hvað þýðir það ef það er 0% á mann? Það þýðir að þjónustukrafan eykst svo mikið vegna þess að þetta er drifið áfram af svo brjálæðislegri fólksfjölgun að velferðarþjónustan verður dýrari og það verður erfiðara að viðhalda vegakerfinu. Það kemur meiri þjónustukrafa inn í kerfið. Svo veltir fólk fyrir sér: Hvernig stendur á því að það þarf alltaf meiri og meiri útgjöld úr ríkissjóði? Það er vegna þess að eðli hagvaxtar skiptir máli. Það er ekki nóg að taka bara vöxtinn inn, það þarf að tryggja að við séum ekki að skapa aukna þjónustuþörf að óþörfu. Við viljum auðvitað gera vel við fólk en þetta þarf að vera sjálfbært hvað það varðar. Þess vegna skiptir máli að við séum ekki bara með stefnu varðandi tekjur og útgjöld heldur líka varðandi atvinnumálin í landinu. Og af því að hér er sérstaklega talað um viðhald vega þá er það auðvitað stór partur af því að við lögðum sérstaklega áherslu á að forgangsraða því viðbótarfé sem við töldum okkur hafa til umráða til að setja í vegakerfið vegna þess að við vitum að það er líka stórt atvinnumál og þess vegna rímar það vel við okkar atvinnustefnu.