fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Tölur Vinnumálastofnunar sýna 4,8% atvinnuleysi. Það hafa verið skiptar skoðanir um hvor hefur rétt fyrir sér, Hagstofan eða Vinnumálastofnun. Þau mæla þetta með ólíkum hætti. Aðalmálið er sögulegt samhengi. Það hefur verið aðeins hærra hjá Hagstofunni í gegnum tíðina og aðeins lægra hjá Vinnumálastofnun. Það er stóra samhengið hvernig þetta hefur verið samanburðarhæft á milli ára.
Áhugaverð umræða hér varðandi erlenda ríkisborgara og örorkukerfið og líka umræðan um almannatryggingar. Á síðasta kjörtímabili voru gerðar breytingar hér á örorkukerfinu sem ég studdi, sem Samfylkingin studdi, sem hækkaði grunnbætur þessa hóps. Það sem þessi ríkisstjórn er að gera er að tryggja að þær haldi verðgildi sínu, nema síðasta ríkisstjórn hafi ætlað sér að hækka það og láta þennan hóp síðan falla í samanburði við aðra launþega í landinu, þá er þetta ekki eðlileg nálgun. Fólk getur þá bara haldið því fram að þau hafi ætlað að hækka þetta í eitt skipti og láta síðan þennan hóp eiga lægri skerf af kökunni. Ég er á þeirri skoðun að þegar laun hækka annars staðar í kerfinu þá eigi sá hópur sem getur ekki farið í verkföll ekki að þurfa að berjast til að halda a.m.k. hlutfallinu óbreyttu. Það er mín skoðun. Fólk getur haft skoðanir á greiðslunum í grunninn en hækkunin átti sér stað hér á síðasta kjörtímabili. Það var síðasta ríkisstjórn sem samþykkti það og Samfylkingin studdi það vissulega.
Varðandi örorkubæturnar, þá er ég ekki með þá tölfræði hérna í vasanum en það er mjög lítill hópur af fólki sem eru erlendir ríkisborgarar sem eru á örorku. Hlutfallið er hátt í atvinnuleysinu. Og hvað er ríkisstjórnin að gera í atvinnuleysinu? Við erum m.a. að gera breytingar með frumvarpi sem er komið til meðferðar þingsins á því hversu lengi þú getur verið í atvinnuleysiskerfinu og hvenær þú getur byrjað að fá þessar greiðslur. (Gripið fram í.) Það liggur alveg fyrir að örorkuhópurinn er í mjög fáum tilvikum erlendir ríkisborgarar og eldri borgarar sem eru að þiggja eða fá greiðslur. (Gripið fram í.) Forseti. Hver er með orðið?
(Forseti (BergÓ): Hæstv. forsætisráðherra er með orðið, gjörðu svo vel. Forseti biður hv. þingmann um að gefa hæstv. forsætisráðherra svigrúm til að ljúka máli sínu. )
Þegar kemur að greiðslum til eldri borgara þá eru það réttindi fólks í kerfinu og hvort sem þú ert hér af erlendum uppruna eða ekki, ef þú hefur verið á íslenskum vinnumarkaði og ert með lífeyri í kerfinu, hvort sem það er í lífeyrissjóðakerfinu eða í tengslum við TR, þá eru það áunnin réttindi og ég geri ekki athugasemd við það, hvar sem þú ert fæddur, (Forseti hringir.) ef þú ert að fá lífeyrisgreiðslur úr kerfinu, en það er lykilatriði í þessu samhengi. (Gripið fram í.)