fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra kærlega fyrir svarið. Það gætir einhvers misskilnings hér. Ég er ekki að gera athugasemdir við það að ná betri árangri í efnahagsmálum ári fyrr, þvert á móti, ég fagna því og hef gert það í allri umræðunni um þessa fjármálaáætlun. Það er hins vegar alveg ljóst að maður þarf ekki annað en að skoða fyrstu fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, fjárlög ríkisstjórnarinnar, nefndarálit meiri hluta fjárlaganefndar, til að sjá hvernig hagtölurnar hafa breyst. Spárnar hafa ekki gengið eftir eins og menn ætluðu. Það er kannski það sem við höfum verið að benda á hér, virðulegur forseti. En að ætla mönnum það að vera eitthvað fúlir yfir því að við séum að ná ríkissjóði á jákvæðan stað ári fyrr, það á sér ekki stað í raunveruleikanum, alla vega ekki hjá þeim sem hér stendur.
Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra einmitt út í þetta. Það er 1 milljarður sem er væntanlegur í afgang í fjárlögum ársins 2027. Spurningin er einfaldlega sú hvort hæstv. forsætisráðherra telji að þessi milljarður í 1.700 milljarða fjárlögum sé nægjanlegur eða sé nægilega trúverðugur. Það er öllum ljóst sem lesa fjármálaáætlun og hafa skoðað fjármálaáætlanir og fjárlög síðustu ára að 1 milljarður er afskaplega veik stoð til þess að byggja á. Það þarf afskaplega lítið út af að bregða þannig að það náist ekki. Því langar mig að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort það sé í raun og veru ekki ótímabært að tala um hallalaus fjárlög 2027 — þó að það sé stefnt að þeim þá er það sannarlega fugl í skógi en ekki í hendi — 20 mánuðum (Forseti hringir.) áður en lokaniðurstaða ársins 2027 liggur fyrir.