fjármálaáætlun fyrir árin 2027--2031.
Forseti. Ég þakka fyrir andsvarið og tek það til mín ef ég var að ásaka hv. þingmann um að vera fúll hér í pontu og er ánægð að heyra að fólk sé sátt við að við séum að komast að þessum áfanga ári fyrr. Ég skil alveg þessa umræðu. Það er hins vegar ákveðið verklag við vinnslu fjármálaáætlunar og við fjárlagagerð og það er að byggja á grunnspám þeirra stofnana sem við treystum hvað best. Það er það sem við höfum núna. Það væri vissulega hægt að gera sviðsmyndir og það þarf að gera sviðsmyndir. Það eru allir meðvitaðir um það að ef hlutirnir versna þá mun reyna á og það reyndi á við gerð þessarar fjármálaáætlunar vegna þess að efnahagslegu forsendurnar hafa vissulega breyst. Engu að síður héldum við okkur við stöðuna og það er líka stór frétt, sama hvar fólk er í pólitík. Já, undirliggjandi efnahagsforsendur breyttust frá síðustu fjármálaáætlun en samt héldum við marki. Við þurfum auðvitað að leita leiða til að bregðast við því ef hagtölur breytast verulega. En ég vil líka segja að ef við verðum í þeirri stöðu að til að mynda ytri áföll, stríðsátök erlendis, eldsneytisverðshækkanir eða verðbólga að utan skapa frekari þrýsting, þá erum við líka komin í verri stöðu almennt sem kallar á aðrar aðgerðir. Við erum ekki núna með þær forsendur inni í okkar spám. Við þurfum auðvitað að bregðast við því ef þörf er á.
Hér er spurt hvort þetta sé nægilega trúverðugt, hvort þetta sé of veik stoð til að byggja á. Við verðum auðvitað að feta okkur áfram með einhverjum hætti og vissulega hlýtur það að vera jákvæð frétt að við séum að fara úr halla í jákvæða afkomu. Á sínum tíma talaði síðasta ríkisstjórn ítrekað um hagsveifluleiðréttan frumjöfnuð, að hann væri kominn yfir núllið og það væri svo mikið afrek. Á næsta ári verður þessi frumjöfnuður orðinn 90 milljarðar, árið þar á eftir verður hann orðinn 100 milljarðar. Þannig að við erum að hreyfa markið, það er gott og vel, það er metnaðurinn í þessum sal. Við verðum auðvitað að taka á því ef aðstæður breytast verulega en við þurfum líka að geta fylgt þeim spám sem okkur berast.